Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Bakkabraut 19b (419)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
240.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
350.000.000 kr.
Fermetraverð
1.455.301 kr./m2
Fasteignamat
2 kr.
Byggt 2026
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Heitur pottur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
4997019
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
419
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir:

Sérlega glæsilega tveggja hæða útsýnisþakíbúð með aukinni lofthæð, veglegum þaksvölum og fallegri sjávarsýn. Íbúðir á efstu hæðum eru með þaksvölum með stórbrotnu útsýni til fjalla og yfir hafið. Frá íbúðunum blasir við útsýni til Bláfjalla og Bessastaða, auk víðáttumikils landslags höfuðborgarsvæðisins. Íbúðirnar eru með aukinni lofthæð og skilast tilbúin til innréttinga. Verð fyrir fullkláraða íbúð má finna í Nánari lýsingu að neðan. Allar íbúðirnar eru búnar sérstöku loftræstikerfi. Rýmin eru björt og notaleg þökk sé gólfhita og stórum gluggum. Þakíbúðirnar eru aðeins sýndar í einkasýningu.

Allar nánari upplýsingar veita Friðjón í s. 692 2704 og Friðrik í s. 616 1313

Nánari lýsing

Glæsileg og afar rúmgóð tveggja hæða þakíbúð með stórkostlegri lofthæð, mikilli birtu og rúmgóðum þaksvölum til austurs sem skapa einstaka tengingu milli inni- og útirýma. Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með opnu og björtu alrými á efri hæð þar sem rúmgott eldhús með eyju, borðstofa og stofa mynda glæsilegt samliggjandi rými sem hentar jafnt til daglegs lífs og móttöku gesta. Möguleiki er á uppsetningu arins í stofu og heits potts á svölum sem eykur enn á sérstöðu útisvæðisins.

Gengið er inn í íbúðina á neðri hæð um snyrtilega forstofu með góðu skápaplássi. Þar eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, þar á meðal glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi. Einnig er þar notaleg setustofa sem hentar vel til samveru eða sem sjónvarpsrými, auk annars baðherbergis og sérþvottahúss.

Kaupendur sem koma snemma að kaupum geta haft áhrif á efnisval og útfærslur.

Bílastæði nr B63 & B64. Frístundaskúr nr 0007. Þaksvalir eru samtals 60,7 m2 og svalir 11,9 m2 að stærð.

Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. Sjá nánar sölusíðu verkefnis HÉR !

Auglýst verð miðast við að íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og hefur kaupandi þá kost að haga hönnun og efnisvali eftir sínum stíl. Í boði er að fá íbúðir afhentar fullkláraðar án megingólfefna og eftir atvikum frágang arins og útisvæðis. Verð á íbúð 419 miðað við slík skil er kr. 380.000.000,- Sé þess óskað geta kaupendur valið um hönnunarþema, Yl eða Stein. Innréttingar verða þá frá Parka og Voke III og vönduð tæki frá Siemens, þmt. helluborð með innbyggðri viftu og þráðlausri stýringu, sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar.

Frystiskápar og vínkælar í völdum íbúðum. Íbúðirnar verða búnar snjöllu hússtjórnunarkerfi frá Free@home sem gerir íbúum kleift aðstýra hitastigi, lýsingu, gardínum og fleiru á einfaldan hátt. Tæknimaður sér um uppsetningu kerfisins í hverri íbúð og leiðbeinir um notkun þess. Nánari upplýsingar um endanleg skil fást hjá söluaðila.

Á Vesturbakka rísa 118 vandaðar eignir þar sem rík áhersla er lögð á fágaðan arkitektúr, tímalausa hönnun og nútímaþægindi, fyrir þau sem vilja aukin lífsgæði og fallega sjávarsýn.

Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vönduðu efnisvali og vel útfærðuskipulagi. Alrými þeirra eru björt og rúmgóð og skapa aðlaðandi umgjörð umdaglegt líf og samveru með fjölskyldu og vinum. Í hjarta byggðarinnar er skjólgóður inngarður og til suðurs tekur við hafnarsvæði Kársness sem er í umbreytingu, en þar munu mannlíf og náttúra mætast.

Fjölbreytt afþreyfing er í boði í frístundarými sem staðsett verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og er opið sameiginlegt fyrir íbúa í húsinu. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, útisvæði með heitum- og köldum potti ásamt saunu. Þá verður golfhermir og aðstaða fyrir pílukast.
Næg bílastæði verða á lóðinni en 103 sérmerkt stæði eru í bílakjallara auk þess sem 58 bílastæði verða á lóð hússins.

Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem spennandi framtíðarsýn Kópavogsbæjar er að taka á sig mynd. Skipulag svæðisins gerir meðal annars ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds sem munu glæða höfnina lífi. Fyrir framan Vesturbakka er gert ráð fyrir bryggju- og hafnaraðstöðu, sem veitir siglingaáhugafólki einstakt tækifæri til að hafa bát sinn við bryggju. Staðsetningin á Kársnesinu sameinar nálægð við náttúruna og fjölbreytta þjónustu. Með tilkomu Fossvogsbrúarinnar styrkist tengingin við Reykjavík ennfrekar og greið leið opnast að miðborginni, háskólasvæðunum og útivistarparadísinni í Nauthólsvík

Sjá upplýsingabækling HÉR !

Nánari upplýsingar veita :

Friðjón Örn Magnússon lgfs. í s. 692 2704 og fridjon@miklaborg.is

Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is


Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakkabraut 13 (506)
Efsta hæð
Bakkabraut 13 (506)
200 Kópavogur
228,1 m2
Fjölbýlishús
423
1315 þ.kr./m2
300.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 13 (506)
Efsta hæð
skjamynd-2026-11-12-211232.png
Bakkabraut 13 (506)
200 Kópavogur
228,1 m2
Fjölbýlishús
423
1315 þ.kr./m2
300.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 19b (419)
Efsta hæð
Heitur pottur
Bakkabraut 19b (419)
200 Kópavogur
240,5 m2
Fjölbýlishús
433
1455 þ.kr./m2
350.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 21a (420)
Efsta hæð
Heitur pottur
Bakkabraut 21a (420)
200 Kópavogur
230,9 m2
Fjölbýlishús
423
1472 þ.kr./m2
340.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin