Fasteignaleitin
Skráð 6. okt. 2023
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

HæðÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
81 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
40.400.000 kr.
Fermetraverð
498.765 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
700111122
Húsgerð
Hæð
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stórar svalir og möguleiki á sér þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*ÍBÚÐIR MEÐ SÉRGARÐI EÐA SÉR ÞAKVERÖND* *FRÁBÆR STAÐSETNING* 
*ALLT FYLGIR MEÐ*

Glænýjar og vandaðar 4ra herb.(þrjú svefnherb. + 2 baðh.) íbúðir vel staðsettar á Villamartin golfparadísarsvæðinu. Hægt er að velja um neðri sérhæð með garði eða efri sérhæð með einkaþaksvölum, íbúðirnar snúa allar til suðurs. Flottar íbúðir með glæsilegum sundlaugargarði og fallegu umhverfi. Sérbílastæði fylgir.
Hægt er að fá húsgagnapakka og rafmagnstæki afhent með eigninni gegn hagstæðu aukagjaldi, þannig að hægt er að mæta bara á staðinn og byrja að njóta frá fyrsta degi.
ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengi er út í stóran garð frá alrými í íbúðum á neðri hæð, en útgengi út á rúmgóðar svalir og þaðan upp á sér þaksvalir hjá íbúðum á efri hæð.
Í svefnherbergisálmu er góð hjónasvíta ásamt sér baðherbergi. Útgegni frá hjónasvítu út á góða verönd.
Tvö svefnherbergi til viðbótar og auka baðherbergi.
Neðri hæð er með sér 98 fm. verönd.
Efri hæð er með 93 fm. verönd.

Sérmerkt bílastæði inni á lokaðri lóð.
Sérgarður með íbúðum á neðri hæð.
Sér þaksvalir með íbúðum á efri hæð.
Sundlaugargarður með góðri aðstöðu.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Allar íbúðir snúa til suðurs.
Gott útsýni yfir sundlaugargarðinn frá öllum íbúðum.

Raftæki og húsgagnapakki og loftkæling/hitun fylgir með, þannig að hægt er að flytja beint inn og byrja að njóta.
Til afhendingar í nóvember 2023.

Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað stutt frá nokkrum góðum golfvöllum.
Ca. 10 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK):
4ra herb. íbúðir (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi), efri eða neðri sér hæð með sér garði eða sér þakverönd: verð 279.000 Evrur (ISK40.400.000 ) + kostn. við kaupin, ca. 13%.


Á sama stað eru líka til 3ja herb. íbúð (tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi), efri eða neðri sér hæð með sér garði eða sér þakverönd: verð 239.000 Evrur  (34.600.000ISK) + kostn. við kaupin ca. 13%.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður og borgum fyrir tvo allt að 60.000 ISK/mann eða samtals 120.000,- ISK
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, garður, bílastæði, svalir, þakverönd, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, air con,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
700111122
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Zenia
SPÁNAREIGNIR - La Zenia
Spánn - Costa Blanca
87 m2
Fjölbýlishús
322
453 þ.kr./m2
39.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
72 m2
Hæð
322
556 þ.kr./m2
40.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
Spánn - Costa Blanca
76 m2
Fjölbýlishús
322
551 þ.kr./m2
41.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
Spánn - Costa Blanca
98 m2
Hæð
322
421 þ.kr./m2
41.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache