ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Miðgarður 1, birt stærð 193.7 fm. Eignin er í dag með fjórum svefnherbergjum en búið er að sameina tvö í eitt. Alls geta verið fimm svefnherbergi. Tvöfaldur innangengur bílskúr.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús, stofa, herbergjagangur með 4-5 svefnherbergjum og baðherbergi. Frá forstofu er gengið inn í millirými/fatarými og þaðan inn í bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 698-6655, tölvupóstur pall@allt.is.Eignin hefur verið endurnýjuð og við haldið síðustu. Endurnýjað síðustu 10 ár ,þakjárn, gluggar á flestum stöðum í húsinu, girðing og skjólveggir kringum húsið, heitur pottur með hitastýringu úr bílskúr,rafmagnstafla og þriggjafasa rafmagn, hitastýring í gólfhitakerfi með app stýringu, raftæki eldhúsi.
Vel skipulagt einbýlishús með innangengan bílskúr. Hiti er í gólfum en ofnar í herbergjum.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, fatahengi. Frá forstofu er gengið inn í miðrýmið með eldhúsið á hægri hönd. Á vinstri hönd er fataherbergi og þaðan innangengt í bílskúrinn.
Hol: Frá forstofu er komið inn í flísalagt opið rými sem tengir saman eldhús og stofu.
Eldhús: Á hægri hönd frá miðrými er stórt eldhús með fallegri hvítri eldhúsinnréttingu með granít borðplötu,miklu skápaplássi, góðri vinnuaðstöðu, bakarhofn í vinnuhæð, eyju með kermamik helluborði, nýleg eldhústæki, gólf flísalagt með hita í gólfi.
Þvottahús: Innaf eldhúsi er þvottahús með hvítri innréttingu og skolvaski, gott skápapláss með góða vinnuaðstöðu með flísar á gólfi, opnanlegum glugga og með útgengi út í garð.
Stofa /borðstofa: Er bjart og opið rými með stórum nýlegum gluggum. Frá borðstofu er útgengt á verönd.
Svefnherbergisálma: Björt álma með flísum á gólfi, útgengt fyrir framan baðherbergið út á verönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi 1: parket á gólfi.
Barnaherbergi 2: parket á gólfi.
Barnaherbergi 3-4: Mjög rúmgott herbergi með fataskápum, (upprunalega tvö svefnhergi) parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, innrétting með miklu skápaplássi, baðkar með sturtu og gleri, handklæðaofn og opnanlegum glugga. Fyrir framan baðherbergið er útengi á veröndina í pottinn.
Bílskúr (45,2 fm): Frá forstofu er gengið í gegnum fataherbergið (möguleiki að breyta í gestasnyrtingu). Gengið inn í bílskúr með tveimur rafdrifnum innkeyrsluhurðum með þriggjafasa rafmagni. Lakkað gólf, heitt og kalt vatn, og opnanlegir gluggar.
Umhverfi: Steypt innkeyrsla með snjóbræðslukerfi, fallegur afgirtur garður sem umliggur húsið, verönd að framan við eldhús með skjólveggjum, einstaklega glæsileg rúmlega 80 fm. verönd sunnan megin við húsið með skjólveggjum, steyptri plötu, (stimpluð) og nýlegum heitum potti.
Mjög vel staðsett einbýlishús í nálægð við alla helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttahús, matvöruverslun, Reykjanesbrautina í barnvænu og eftirsóttu skólahverfi.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.