Fasteignaleitin
Skráð 26. sept. 2025

Smiðjustígur 12

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
104.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
99.400.000 kr.
Brunabótamat
54.150.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2003068
Landnúmer
101016
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar
Raflagnir
Endurnýjaðar
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Tvöflalt gler
Þak
Þakjárn
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Tvennar svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til leigu eða sölu virkilega glæsilegt og mikið endurnýjað 104,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum á 160,2 fermetra glæsilegri lóð við Smiðjustíg í Reykjavík.

Eignin getur hentað hvort sem er sem íbúðarhúsnæði eða skrifstofuhúsnæði.

Húsið var teiknað árið 1905 af Rögnvaldi Ólafssyni sem var fyrsti húsameístari Íslands. 

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á sl. 20 árum, m.a. eldhús og tæki, viðbygginga á neðri hæð sem er óskráð í Fasteignaskrá Íslands, byggðar svalir ofan á viðbyggingu, baðherbergi endurnýjað og margt fleira.

Skv. nýlegri uppmælingu á eigninni er gólfflötur neðri hæðar 49,0 fermetrar auk baðherbergis sem er 14,0 fermetrar. Efri hæð hússins mælist 49,0 fermetrar að gólffleti.
Samtals er eignin því um 112,0 fermetrar að stærð skv. þessari mælingu.

Lýsing eignar:

Forstofa, með fatahengi og með viðargólfborðum. Þaðan gengur stigi upp á efri hæð hússins.
Herbergi I, rúmgott með tveimur gluggum og með viðargólfborðum. 
Hol, viðargólfborð. 
Herbergi II, rúmgott með glugga og með viðargólfborðum. 
Baðherbergi, með glugga og útgengi á lóð, viðargólfborð, vegghengt wc, handklæðaofn, flísalögð sturta, innrétting við vask og önnur innrétting með þvottavél og þurrkara.  Baðherbergi er síðari tíma viðbygging að sögn eiganda, er um 15 fermetrar að stærð, og er ekki innifalið í skráðri stærð hússins hjá Fasteignaskrá Íslands.

Gengið er upp á efri hæð um fallegan viðarstiga í alrými sem í eru stofa og eldhús, parketlögð.
Stofa, björt og rúmgóð með mjög mikilli lofthæð í mæni og fallegum viðarbitum í loftum. Úr stofu er gengið út á svalir til suðvesturs og stórar svalir til suðausturs.
Eldhús, opið við stofu að hluta, parketlagt og bjart með fallegum hvítum innréttingum með innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp og stórri SMEG samstæðu með gashelluborði.

Geymslukjallari er undir hluta hússins, en hann er ekki manngengur.

Húsið að utan lítur vel út og er nýlega málað.  Gler og gluggar líta nokkuð vel út.

Lóðin er fullfrágengin og glæsileg, afgirt með viðargirðingu og lágum vegg úr hoggnu grjóti.  Tyrfðar flatir og hellulagðir stígar og verönd auk trjágróðurs.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og rólegum stað í miðborginni.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/04/200723.410.000 kr.40.000.000 kr.104.4 m2383.141 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drekavogur 14
Bílskúr
Skoða eignina Drekavogur 14
Drekavogur 14
104 Reykjavík
248.8 m2
Einbýlishús
926
763 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Baldursgata 30
Skoða eignina Baldursgata 30
Baldursgata 30
101 Reykjavík
127.5 m2
Fjölbýlishús
613
823 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 39
lAUGAVEGUR39.jpg
Skoða eignina Laugavegur 39
Laugavegur 39
101 Reykjavík
123.3 m2
Fjölbýlishús
322
718 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Skoða eignina Fagurgerði 6
a4132f9c5fcfad1c12c21d53b87914d4.jpg
Skoða eignina Fagurgerði 6
Fagurgerði 6
800 Selfoss
215.5 m2
Einbýlishús
5
455 þ.kr./m2
98.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin