Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

Kolbrúnargata 1 (203)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
112.7 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.500.000 kr.
Fermetraverð
811.890 kr./m2
Fasteignamat
31.650.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
2. hæð
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25349754
Landnúmer
229836
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir í suðurátt
Upphitun
Sameiginlegur hiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Stofnskjal lóðar, sjá skjal nr. 411-A-000618/2003. Stofnskjal lóðar, sjá skjal nr. 411-U-004700/2007. Stofnskjal lóðar, sjá skjal nr. 411-S-011151/2007. Lóðamarkabreyting, sjá skjal nr. 441-H-002130/2023. Kvöð, sjá skjal nr. 411-S-010236/2013. Lóðarleigusamningur, sjá skjal nr. 441-A-008811/2025. Sú kvöð hvílir á eigninni að sá sem kann að eignast réttindi Hamla 1 ehf og Landsbankans er bundinn af því að inna af hendi greiðslu gatnagerðagjalds, sjá skjal. Kvöð, sjá skjal nr. 441-D-006274/2021. Handhöfum byggingarréttar er heimilt að veðsetja byggingarrétt sinn að einstökum lóðum þegar lóðarleigusamningur hefur verið gefinn út af Mosfellsbæ.- Veðsetning nær til lóðarleiguréttinda skv. lóðarleigusamningi svo og þeirra mannvirkja sem á lóðinni munu rísa. sjá um kvaðir í gr. 2.4 og 2.5. - Kvöð v/ almennra sölu- og byggingarskilmála.

Eignin skal afhent í samræmi við skilalýsingu í söluyfirliti sem tilboðsgjafi hefur kynnt sér og skoðast það sem hluti af kauptilboði þessu. Samþykktar teikningar eru til viðmiðunar og geta orðið minniháttar frávik á þeim.
Áætlað fasteignamat eignarinnar liggur ekki fyrir þar sem það er ekki búið að þinglýsa eignaskiptayfirlýsingu. Kaupandi greiðir stimpilgjöld af fasteignamati eignarinnar við kaupsamning. Fyrstu kaupendur greiða 0,4% af verðandi fasteignamati en aðrir kaupendur greiða 0,8%. Lögaðilar greiða 1,6% af verðandi fasteignamati. Ekki er hægt að fara í kaupsamning fyrr en búið er að þinglýsa eignaskiptayfirlýsingunni. Fasteignagjöld og brunatrygging fyrir árið 2026 liggur ekki fyrir við tilboðsgerð. Yfirlýsing húsfélags liggur ekki fyrir þar sem ekki er búið að stofna húsfélagið. Seljandi áskyldi sér rétt til að lokafrágangur utanhúss og lóðar sé frágenginn eigi síðar en við afsal. Athuga að myndir eru úr íbúð 101. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af endanlegu brunabótamati). 

 
** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  ​- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
 
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 112,7 m2 3-4ra herbergja endaíbúð á 2.hæð, merkt 01-0203, í nýju fimm íbúða fjölbýlishúsi við Kolbrúnargötu 1 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 112,7 m2, þar af íbúð 107,0 m2 og geymsla 5,7 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu (væri hægt að breyta í herbergi). Sérgeymsla í sameign á jarðhæð. Rúmgóðar svalir í suðurátt með fallegu útsýni.

Eignin afhendist fullbúin í nóvember 2026 með gardínum, gólfefnum, innréttingum frá HTH og innbyggðum eldhústækjum. 
Búið að leggja rafmagn fyrir rafbílahleðslu frá ON á sameiginleg bílastæði. Skv. samþykktum bygginganefndarteikningum, þann 29.11.2024, þá er búið að fá samþykki fyrir svalalokunum á öllum íbúðum í húsinu. Íbúðirnar eru afhentar án svalalokana og eru kaupendur hvattir til að kynna sér vel skilmála svala og verandalokana, áður en þeir taka ákvörðun um að fara í þá framkvæmd.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Eldhúsinnrétting frá HTH með blástursofni, örbylgjuofni, spanhelluborði, viftu frá Airforce, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp og frystiskáp. Heimilistæki frá AEG. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Sjónvarpsstofa er með parketi á gólfi. Opið er inn í sjónvarpsstofu úr stofu. Hægt væri að setja upp vegg og bæta við þriðja svefnherberginu.
Svefnherbergi nr.1 (hjónaherbergi) er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofni og sturtu með sturtugleri.
Þvottahús er með innréttingu þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð hússins.
Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
 
Annað:
Kolbrúnargata 1 er 2ja hæða fjölbýlishús með 5 íbúðum. Húsið er hannað af Garðari Snæbjörnssyni, arkitekt hjá GS-Teiknistofu ehf. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt. Húsið er byggt af Byggingarfélagi Bakka ehf en Bakki er fjölskyldufyrirtæki úr Mosfellsbæ, með yfir 40 ára reynslu af húsbyggingum. Félagið hefur byggt og afhent yfir 250 íbúðir í Mosfellsbæ á sl. 10 árum.
Lóð verður fullfrágengin, 10 bílastæði eru á lóðinni en þar af eru 1 fyrir hreyfihamlaða. Gönguleið að húsi er hellulögð með snjóbræðslu. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotarétt að lóð út frá stofu með afgirtri timburverönd. Íbúðir á 2. hæð eru með rúmgóðar svalir í suðurátt.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með innréttingum frá HTH. Heimilistæki eru frá AEG. Eikarlitað harðparket á gólfum, frá Birgisson. Flísar á baðherbergjum, þvottahúsi og á forstofu eru frá Birgisson. Blöndunartæki eru frá Tengi.

Verð kr. 91.500.000,-
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gerplustræti 12
Bílastæði
Opið hús:05. okt. kl 17:50-18:20
Skoða eignina Gerplustræti 12
Gerplustræti 12
270 Mosfellsbær
116.9 m2
Fjölbýlishús
413
752 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduborgir 13
Opið hús:03. okt. kl 14:01-14:31
Skoða eignina Hulduborgir 13
Hulduborgir 13
112 Reykjavík
134.9 m2
Fjölbýlishús
413
738 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Sunnubraut 17
Efsta hæð
Skoða eignina Sunnubraut 17
Sunnubraut 17
300 Akranes
107.1 m2
Hæð
413
528 þ.kr./m2
56.500.000 kr.
Skoða eignina Tjarnargata 41
Á einni hæð
Skoða eignina Tjarnargata 41
Tjarnargata 41
230 Reykjanesbær
115 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
521 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin