RE/MAX & Oddur Grétarsson kynna:Hugguleg og rúmgóð 5 herbergja íbúð á 2. hæð að Breiðvangi 26 í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 139,4 fm þar af bílskúr 24fm. Geymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Bílskúrinn er með rafdrifinni hurða opnun með fjarstýringu, rafmagni og hita. Sérmerkt bílastæði er fyrir framan bílskúirinn.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS
SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-DEldhús: parket á gólfi, borðkrókur, gengið inn í þvotthús úr eldhúsi.
Þvottahús: er innaf eldhúsi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegt fag.
Stofa og borðstofa: eru í sameiginlegu opnu rými með parketi á gólfi og útgengi á svalir sem snúa í suður.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi eru þrjú minni og eitt með fataskáp. Parket á gólfum í öllum þeirra.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum að hluta, nýleg innrétting, baðkar með sturtu og opnanlegt fag.
Um er að ræða huggulega og rúmgóða 5 herbergja íbúð með bílskúr og sér bílastæði á barnvænum stað í göngufjarlægð frá skóla, leikskóla og matvöruverslun.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk