Fasteignasalan TORG kynnir: Fallega, fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð með glæsilegur útsýni við Framnesveg 63, Reykjavík. Eignin er skráð 116,7 fm þar af 6,7 fm geymsla í sameign. Eignin er björt og telur anddyrishol, þrjú til fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og svalir út frá stofu til suðvesturs. Sérgeymsla í kjallara og merkt stæði á lóð í sameign. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyrishol með flísum á gólfi.
Eldhús er með viðarlitaðri innréttingu og ljósri borðplötu, bakaraofni, helluborði og tengi fyrir uppþvottavél.
Þvottaherbergi / búr inn af eldhúsi sem búið er að opna. Innrétting með pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með vaski.
Stofa með parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir.
Svefnherbergin eru þrjú og eru öll rúmgóð. Skipulagi íbúðar hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. Möguleiki er á að bæta við öðru herbergi og/eða stækka stofu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum, með sturtu, efri og neðri skápum skápum og viðarlitaðri innréttingu með handlaug.
Sérgeymsla er 6,7 fm og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Sérmerkt stæði á lóð
Af sögn seljanda hefur eftirfarandi verið gert:
2024: Hús sprunguviðgert og grunnað með olíugrunni
2022-2023: Skipt um glugga og gler
2020: Þakjárn hreinsað, grunnað og málað
2017: Stigagangur teppalagður og málaður
2015: Hús málað og skipt um lofttúður á þaki
Samantekt: Um ræðir frábæra og vel staðsetta eign á þessum fjölskylduvæna stað í vesturbæ Reykjavíkur þar sem örstutt er í allar helstu verslanir og þjónustu, leik- og grunnskóla sem er í göngufæri, skemmtilegar gönguleiðir og útivist og fallegt umhverfi. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
eignarhús.