Fasteignaleitin
Skráð 22. apríl 2026

Hraunteigur 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
64 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.500.000 kr.
Fermetraverð
929.688 kr./m2
Fasteignamat
58.000.000 kr.
Brunabótamat
32.000.000 kr.
Mynd af Vilborg Gunnarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Löggiltur Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2018921
Landnúmer
104562
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / rafmagnstafla endurnýjuð í íbúð.
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Þarfnast viðhalds
Þak
Yfirfarið+málað 2024
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1
Lóð
17,38
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Nýlega búið að virkja húsfélagið til framkvæmda og það er byrjað að safna í framkvæmdarsjóð í húsinu. 
Það hefur verið samþykkt að leita tilboða í eftirfarandi:Laga lögn sem lekur í sameign og mála og teppaleggja sameign. Á einhverjum tímapunkti þarf að skipta um rafmagnstöflu og leggja nýtt rafmagn í sameign.
Tilboðin í framkvæmdirnar sem rætt hefur verið um eru ósamþykkt.
Gallar
Lögn lekur í sameign og fyrirhugað er að lagfæra hana.
Móða í flestum rúðum í gluggum íbúðar og bil er á milli þröskuldar og svalahurðar - líklegt að hurðin sé ónýt.Þá er frágangur á rafmagni beint í vegg bak við plöntuhillu í eldhúsi sem vert er að skoða betur. Loftaplötu vantar í baðherbergi yfir sturtu.
Rafmagnstafla í sameign þarfnast endurnýjunar.
Domusnova og Vilborg kynna nýtt í einkasölu:
EINSTAKLEGA FALLEG OG MIKIÐ ENDURNÝJUÐ 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2.HÆÐ Í GÓÐU STEINHÚSI VIÐ HRAUNTEIG.

LAUS VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS.
ÍBÚÐIN ER 64 FM, AÐ AUKI ER GEYMSLAN 5,5 FM, EÐA ALLS UM 70 FM.

Forstofa / hol er rúmgott og tengir aðrar vistarveru íbúðarinnar, parket á gólfi.  Tveir góðir geymsluskápar eru í holi.
Stofan er björt og falleg, upptekin loft og sérhönnuð lýsing. Hurð inn í stofu er upprunaleg og er einstaklega falleg með frönskum gluggum. Parket á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu, flísar á gólfi, vönduð ítölsk gaseldavél.  Þá fylgir AEG uppþvottavél.
Baðherbergi endurnýjað og endurhannað með náttúrustein á gólfi.  Stór flísalagður sturtuklefi,nett viðarinnrétting, upphengt salerni og flísar á veggjum.  Hiti er í baðgólfi og opnanlegt fag á glugga.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi, gengið út á  suðaustursvalir.
Þvottahús er sameiginlegt og er í kjallara.
Sér geymsla íbúðar er með glugga.  Hún er ekki skráð inn í stærð íbúðar og er 5,5 fm.

Að sögn seljanda hefur eftirfarandi verið framkvæmt:
  • Parket á gólfum er nýlegt.
  • Brunavarnir teknar í gegn í sameign.
  • Húsið viðgert og steinað að utan árið 2006.
  • Frárennsli og dren endurnýjað árið 2003.
  • Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð í íbúðinni.
  • Þakið var yfirfarið og málað 2024.
  • Árið 2015 var lagt nýtt gólfefni á hol, stofu og svefnherbergi.
  • Baðherbergi, eldhús o.fl. var endurnýjað 2007.
  • Skipt var um raflagnaefni og m.a. sett upp sérhönnuð lýsing í hluta íbúðarinnar.
Stór og falleg lóð með sameiginlegum sólpalli.
Veggfastur rafmagnshitari á svölum fylgir með.

Íbúðin er einstaklega björt og falleg í litlu fjölbýlishúsi við Hraunteiginn.  Hverfið er gróið þar sem Laugardalslaug, World Class og útivistarsvæði er í göngufæri en einnig er stutt í verslun og þjónustu. 
Þá er hún vel staðsett með tilliti til skóla og leikskóla.
Falleg íbúð sem vert er að skoða.


Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / vilborg@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/07/201518.600.000 kr.27.200.000 kr.64 m2425.000 kr.
22/11/200612.040.000 kr.16.200.000 kr.64 m2253.125 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rofabær 43
3D Sýn
Skoða eignina Rofabær 43
Rofabær 43
110 Reykjavík
82 m2
Fjölbýlishús
312
694 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb210
Opið hús:22. apríl kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb210
210 Garðabær
64.8 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb203
Opið hús:22. apríl kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb203
210 Garðabær
64 m2
Fjölbýlishús
32
1139 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb101
Opið hús:22. apríl kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb101
210 Garðabær
122 m2
Fjölbýlishús
43
975 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin