Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Indriðastaðahlíð 162

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
266.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
431.144 kr./m2
Byggt 2011
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
23246401
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Margir inngangar

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Glæsilegt heilsárshús með stórri eignarlóð, miklu útsýni, bílskúr og stórri verönd allt um kring. Húsið stendur mjög hátt í landi Indriðastaða, í lokuðu hverfi með aðgangansstýringu. Góð aðkoma er að húsinu sem stendur á 6.237 fm eignarlóð fremst í Skorradalnum. Gólfhiti og heitur pottur á verönd. Í þessu húsi er hitatúpa fyrir gólfhita en varmaskiptir fyrir neysluvatn.
 
Indriðastaðahlíð 162 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt: 01-01, birt stærð 266,5 fm og skiptist þannig að neðri hæðin er 26,6 fm ásamt 77,7 fm bílskúr, efri hæðin er skráð 162,2 fm eða samtals: 266,5 fm. 

Nánari lýsing eignar: Neðri hæðin skiptist í bílskúr, opið rými, stórt þvottahús og innaf bílskúrnum er gluggalaust rými. Bílskúrinn er með sjálfvirkum hurðaopnara. Expoxy á gólfum neðri hæðar. Við þvottahús er stigi upp á efri hæðina. Aðalinngangur er sunnanmegin við húsið. Komið er inn í mjög rúmgóða forstofu. Frá forstofu tekur við opið rými. Björt og rúmgóð stofa með stórglæsilegu óhindruðu útsýni út á stórbrotna náttúrufegurð. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu með góðu geymslu- og vinnuplássi, eldunareyja. Rúmgóður borðkrókur með útgangi út timburpallinn / svalirnar með glæsilegu útsýni. Innaf borðkróknum er mjög rúmgott svefnherbergi og innaf því er baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á timburpalinn / svalirnar og þaðan í heitan pott. Setustofa / sjónvarpsstofa með útgangi út á timburpallinn / svalirnar. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, Walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á timburpall / svalirnar. Þrjú svefnherbergi til viðbótar eru í húsinu og er fataskápur í einu herbergjanna. Gólfefni: parket og flísar á efri hæð, epoxý á neðri hæð.

Félagsgjöld í sumarhúsafélaginu árið 2025 eru 15.000 kr. en auk þess eru greiddar 10.000 kr. í hliðgjald sem fer í sérstakan sjóð til reksturs þriggja öryggishliða á svæðinu, samtals eru því greiddar 25.000 kr til sumarhúsafélagsins árið 2025. Inni í því er viðhald og snjómokstur vega á svæðin en ekki einstka heimreiða að bústöðum.Gjöldin í vatnsveitu félagið eru 40.000 kr fyrir árið 2025 en vegna aukins og óvænts kostnaðar við stækkun vatnaveitunnar þurfti að senda út viðbótar greiðsluseðla til eigenda allra lóða upp á 75.000 kr. 

Afar glæsilegt sumar- / heilsárshús á vinsælum, fallegum og friðsælum stað fremst í Skorradalnum. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu í Borgarnesi. 

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Selás 5
Heitur pottur
Skoða eignina Selás 5
Selás 5
311 Borgarnes
92.9 m2
Sumarhús
514
752 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Herjólfsstígur 20
Heitur pottur
Herjólfsstígur 20
805 Selfoss
240.7 m2
Sumarhús
524
532 þ.kr./m2
128.000.000 kr.
Skoða eignina Þverásbyggð 19
Þverásbyggð 19
311 Borgarnes
23 m2
Sumarhús
Fasteignamat 11.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Birkiskógar 6
Heitur pottur
d408efa5-928c-4af3-8f01-e444727b9704.jpg
Skoða eignina Birkiskógar 6
Birkiskógar 6
311 Borgarnes
54 m2
Sumarhús
413
554 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin