Miklaborg kynnir:
Mikið endurnýjuð og björt 132 fm, 5 herbergja íbúð á jarðhæð ásamt stóru afgirtri verönd og stæði í bílgeymslu. Íbúðin sjálf er skráð 106 fm auk bílastæðis í bílakjallara sem er skráð 25,8 fm en um 20 fm geymsla í kjallara er ekki skráð.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með fatahengi og þaðan gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðariinnar. Eldhús er með fallegri hvítlakkaðri innréttingu, steinn á borðum, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur, undirlímdur vaskur og gluggi. Eldhús er opið inn í stofu. Stofan er björt og skipist í stofu og borðstofu. Útgengt er út á svalir og þaðan niður á stóra afgirta verönd (er ekki samþykkt í eignaskiptasamningi en byggð í sátt við íbúa húsins). Svefnherbergisgangur með skápum. Þrjú góð barnaherbergi án skápa og rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Baðherbergið er fallegt og með baðkari, innréttingu og tengir fyrir þvottavél og þurrkara. Í kjallara er mjög stór geymsla ásamt stæði í lokaðri bílgeymslu.
GÓLFEFNI: Fallegt parket er á öllum gólfum nema baðherbergi og anddyri en þar eru flísar.
Húsfélagið rekur litla íbúð í kjallara húsins sem gerir eininguna sérlega hagstæða í rekstri.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 26/03/2021 | 50.600.000 kr. | 68.000.000 kr. | 132.2 m2 | 514.372 kr. | Já |
| 31/01/2012 | 23.500.000 kr. | 26.850.000 kr. | 132.2 m2 | 203.101 kr. | Já |
| 02/08/2006 | 23.765.000 kr. | 28.300.000 kr. | 132.2 m2 | 214.069 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
112 | 104,4 | 78,9 | ||
603 | 78,5 | 59,9 | ||
700 | 200,5 | 95,5 | ||
815 | 74,4 | 55,5 | ||
815 | 105,9 | 70,9 | ||
203 | 114,3 | 96,9 |