Fasteignaleitin
Skráð 5. jan. 2024
Deila eign
Deila

Núpahraun 4, nýtt miðjuraðhús

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
133.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.100.000 kr.
Fermetraverð
473.013 kr./m2
Fasteignamat
33.950.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðbjörg Heimisdóttir
Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
F2518616
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Núpahraun 4, Þorlákshöfn, nýtt, glæsilegt, miðjuraðhús með 3 svefnherbergjum og bílskúr.  Húsið er einstaklega skemmtilega skipulagt og snýr stofan i vestur!  Grænt svæði er vestan við húsið !   
Loft eru upp tekin í húsinu, sem gerir það einstaklega bjart og skemmtilegt.

Húsið er klætt að utan með dökkgráubárustáli og við í bland og dökkgráum gluggum og hurðum og dökkgráu þakstáli !
Húsið skilast tilbúið til málunar.
Hægt er að fá húsið afhent fullbúið! Verð á fullbúnu húsi er kr. 79.800.000,-

 
* Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Húsið skiptist svo:
* Anddyri.
* 3 stór svefnherbergi.
* Fallega stofu og eldhús í opnu rými.  Utangengt er úr stofunni í garðinn um rennihurð.
* Baðherbergi.
* Þvottahús, þaðan sem utangengt er í garðinn.
* Bílskúr.

Íbúðin skilast tilbúið til málunar (á byggingarstigi 5 skv. íst-51) samkvæmt neðangreindri lýsingu:
Burðarvirki:  Burðarvirki hússins er timbur.  
Húsið er klætt að utan með lituðu báraustáli, ljósu að lit.  
Innveggir klæddir 13mm harðgipsi.
Loft eru upp tekinn.  Eftir er að klæða loftaklæðningu en raflagnir og lagnagrind komin upp.

Á þaki er Ranilla bárað þakstál dökk grátt RR23 (Ruukki 30)
Álrennur utaná þakkanta.
Gluggar eru ál-tré gluggar frá viðurkenndum aðila.  Gluggar eru hvítir RAL9010 að innan en gráir 6 að utan.
Hitakerfi: Búið er að leggja gólfhitalagnir og tengja saman við tengigrind.  Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Raflagnir: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni.  Tafla er ófrágengin.
Gólf: Gólf eru steypt og afhendast flotdregin.
Lóð : Lóð er grófjöfnuð með mulningi í plani. Sorptunnuskýli á lóð eru komin. 
Gert er ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla.  Hleðslustöð fylgir ekki.
Kaupandi borgar skipulagsgjald

Seljandi greiðir lóðargjald og öll tengigjöld rafmagns og vatns.
** Húsin eru íslensk hönnun en framleiddí Litháen og koma vegg og þakeiningar frá verksmiðju og eru samsettar á byggingarstað.  Verksmiðjan sem framleiðir einingar hefur afgreitt ca 200 hús síðan 2001 til íslenskra viðskiptavina og er allur frágangur miðaður við íslenska staðla.

** Ath. myndir innan úr fasteign eru innan úr samskonar húsi, að Núpahrauni 10.


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Verslun KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Kaffiskjóðan (facebook: kaffiskjóðan)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Caffe Bristól
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.


Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1582
28.4 m2
Fasteignanúmer
2401350
Númer hæðar
1
Númer eignar
05
Byggingarstig
3 - Burðarvirki fullreist
Húsmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjahraun 27
Skoða eignina Eyjahraun 27
Eyjahraun 27
815 Þorlákshöfn
128.2 m2
Einbýlishús
524
484 þ.kr./m2
62.000.000 kr.
Skoða eignina Hólagata 19
Skoða eignina Hólagata 19
Hólagata 19
900 Vestmannaeyjar
157.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
515
398 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Engjavík 24
Skoða eignina Engjavík 24
Engjavík 24
800 Selfoss
99.3 m2
Raðhús
413
655 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 34A - Íb. 501
Eyravegur 34A - Íb. 501
800 Selfoss
94.2 m2
Fjölbýlishús
514
689 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache