Fasteignaleitin
Opið hús:05. nóv. kl 17:30-18:00
Skráð 1. nóv. 2026

Vesturberg 36

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
127.9 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
702.893 kr./m2
Brunabótamat
75.350.000 kr.
Byggt 1974
Pallur
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20507364
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Guðbjörg Helga lgf. og Gylfi Jens lgf. hjá RE/MAX kynna Vesturberg 36, 111 Reykjavík.
Vel skipulagt og bjart fimm herbergja 127,9 fm endaraðhús á einni hæð. Byggð hefur verið létt sólstofa sem er utan fermetratölu og fallegur afgirtur garður til suðurs með tveimur góðum geymsluskúrum, viðarverönd og matjurtareitum. Afgirt viðarverönd er jafnframt fyrir framan húsið. Húsið var upprunalega með 2 svefnherbergjum, en eru nú þrjú. 16a rafmagnstenglar bjóða upp á möguleika að hlaða 2 rafmagnsbíla í stæðum uppvið húsið. Þakjárn er endurnýjað. Þinglýst yfirlýsing frá 2015 fylgir að hvert hús sjái um þak og glugga á sínum eignarhluta.

Núverandi skipulag (sjá grunnteikningu, en núverandi skipulagi hefur verið breytt frá upphaflegri teikningu):
Forstofa/anddyri, Alrými (stofa/borðstofa, sjónvarpshol og eldhús), 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrting, þvottahús og geymsla. Rúmgóð sólstofa til suðurs.
Afgirtur garður með tveimur geymsluskúrum og matjurtareitum. Afgirt viðarverönd fyrir framan hús til norðurs.

Nánari lýsing:
Plastparket er á gólfum fyrir utan anddyri og baðherbergi þar sem eru flísar og málað steingólf í þvottahúsi.
Forstofa: Rúmgott með fatahengi og spegill.
Geymsla: við forstofu sem nýtist m.a. sem rúmgóður fataskápur.
Gestasnyrting: Við forstofu með léttri rennihurð. Innrétting með vaski og upphengt salerni.
Alrými: Bjart og rúmgott alrými með aukinni lofthæð, sem telur stofu/borðstofu, sjónvarpshol og eldhús. Útgengt er úr stofu í sólstofu til suðurs. Gler í stofuglugga er endurnýjað.
Eldhús: er í alrými með stofu/borðstofu. Hvít háglans innrétting og stór eyja með miklu skúffuplássi. Bakaraofn í góðri vinnuhæð. helluborð og háfur. Innbyggð uppþvottavél og stæði fyrir tvöfaldan ísskáp.  
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting með vaski og bláum borðplötum og upphengt nýlegt salerni. 
3 svefnherbergi: Eitt rúmgott með eldri skápum eftir einum vegg, tvö minni herbergi.
Þvottahús/geymsla: Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og borðplata, hillur á veggjum. Útgengi út í sólstofu.
Sólstofa: 16 fm léttbyggð sólstofa sem er fyrir utan fermetratölu eignarinnar. Opnanlegir gluggar og útgengi í aflokaðan fallegan garð. Glært plexi sólstofuþak. 16a rafmagnstenglar, heitt og kalt vatn og handlaug. Sólstofan er hituð með rafmagnkyndingu. 
2 Geymslur í garðinum: Önnur er upphituð og með rafmagni og gluggum. Hin er köld útigeymsla.

          >> Sæktu söluyfirlit milliliðalaust með því að smella hér <<

          >> Sjáðu eignina betur í þrívíðri sýn (3-D) með eða án húsgagna <<

Framkvæmdir/breytingar í tíð núverandi eigenda:
- Sólstofa byggð.
- Lóð í bakgarði öll endurnýjuð með jarðvegsskiptum, hleðslusteinum og gróðurkössum.
- Auka svefnherbergi útbúið, þannig að eignin telur nú 3 svefnherbergi í stað 2ja áður.
- Endagafl hússins viðgerður með heilmúrun og málun.

Um er að ræða afar skemmtilegt raðhús með frábærri skjólgóðri útiaðstöðu á góðum stað í efra Breiðholti. 
Öll helsta þjónusta er í göngufæri, verslanir, sund og heilsurækt. Stutt er leikskóla, skóla og fjölbrautarskóla.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar: 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 8225124 og gylfi@remax.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturberg 122
Skoða eignina Vesturberg 122
Vesturberg 122
111 Reykjavík
104,5 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Kambavað 1
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Kambavað 1
Kambavað 1
110 Reykjavík
130,7 m2
Fjölbýlishús
413
734 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 49
Bílskúr
Skoða eignina Barmahlíð 49
Barmahlíð 49
105 Reykjavík
137,5 m2
Hæð
413
778 þ.kr./m2
107.000.000 kr.
Skoða eignina Kvistavellir 44
Efsta hæð
Skoða eignina Kvistavellir 44
Kvistavellir 44
221 Hafnarfjörður
119,7 m2
Fjölbýlishús
413
668 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin