Fasteignaleitin
Skráð 12. apríl 2026

Suðurhella 16 íb.205

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
87.1 m2
3 Herb.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fermetraverð
756.602 kr./m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
253180714
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Heimili fasteignasala kynnir glæsilega nýbyggingu á frábærum stað í Vallahverfinu í Hafnarfirði, einstakt útsýni yfir hraunbreiðuna og til fjalla.  Um er að ræða fallegar og sérlega rúmgóðar íbúðir á mjög hagstæðu fermetraverði. Íbúðirnar afhendast með vönduðum innréttingum frá Axis og gólfefnum frá Birgisson. Traustur verktaki. Gott fm verð. Næg bílastæði og möguleiki á hlutdeildarláni!  
      
Nánari lýsing.
Íbúð 0205 er 87,1 fm þriggja herbergja íbúð á 2. hæð og skiptist í anddyri, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu með útgengi á rúmgóðar svalir í vestur með útsýni yfir hraunið og til fjalla. Næg bílastæði.  


Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi. 
Stofa og borðstofa: Í opnu björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á sér verönd íbúðar sem snýr til vesturs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir hraunið og til fjalla. 
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi. 
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi. 
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili og gluggi með opnanlegu fagi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson. 
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  
Ath. Myndir eru af sýningaríbúð og getur skipulag íbúðar verið annað. Efnisval á innréttingum og gólfefnum er eins í öllum íbúðum. 

Húsið stendur á lóð sem markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem fyrir framan hús er fjöldi bílastæða og búið að gera ráð fyrir hleðslustöðvum og á bak við hús er sameiginlegur garður með leiktækjum og sígrænum gróðri.

Fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru. 

Nánari upplýsingar veita:
Gunnlaugur A. Björnsson lgf., gab@heimili.is, sími 617-5161    
Anna Sigurðardóttir lgf., as@heimili.is, sími 898-2017  
Brynjólfur Snorrason lgf., brynjolfur@heimili.is, sími 896-2953 


 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam003.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Hafnarbraut 10a
200 Kópavogur
66.1 m2
Fjölbýlishús
211
1134 þ.kr./m2
74.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 103
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam005.jpg
Hafnarbraut 10a - 103
200 Kópavogur
114.1 m2
Fjölbýlishús
413
982 þ.kr./m2
111.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 101
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam003.jpg
Hafnarbraut 10a - 101
200 Kópavogur
66.8 m2
Fjölbýlishús
211
1033 þ.kr./m2
68.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 102
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam004.jpg
Hafnarbraut 10a - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
413
913 þ.kr./m2
116.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin