Fasteignaleitin
Skráð 3. jan. 2025

Krókháls 20

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
11,000 m2
Verð
Tilboð
Fasteignanúmer
5601397
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
0
Til leigu einstakt verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Krókháls 20 í nálægð við atvinnulíf og náttúru. Frábær staðsetning.

Fyrirhuguð er bygging skrifstofu- og þjónustuhúsnæðis við Krókháls 20 í Reykjavík. Þar mun skapast einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki að flytja starfsemi sína í umhverfi fjarri skarkala og nærri náttúru og útivistarsvæðum.
Úr byggingunni verður óviðjafnanlegt  útsýni þar sem húsið stendur hátt í landinu og mun verða stakt við hliðina á golfvellinum í Grafarholti.
Mikill metnaður verður settur í hönnun hússins til þess að það falli að þeirri fágun og klassa sem staðsetningin gefur.
Áætlanir eru um að húsið verði um 11.000 m² með bílakjallara. Á neðstu hæðinni munu verða verslunar- og þjónusturými en á efri hæðum um 7-8.000 m² skrifstofuhúsnæði.
Nálægð við náttúruna getur veitt fyrirtækjum fjölmarga kosti, bæði þegar kemur að vellíðan starfsmanna, ímynd fyrirtækisins og möguleikum til að skapa sjálfbært og heilsusamlegt vinnuumhverfi.

Fyrirtæki sem koma snemma inn í ferlið munu fá tækifæri til þess að koma að hönnun þess rýmis sem að þau hafa hug á að leigja. Þannig verður hægt að sérhanna húsnæðið samkvæmt hugmyndafræði og starfsemi þeirra fyrirtækja sem verða í húsinu.
Útlit hússins eins og það kemur fyrir á myndunum er einungis til viðmiðunar og gæti tekið breytingum í hönnunarferli.

Staðsetningin og gæði byggingarinnar mun gefa fyrirtækjum glæsilegt vinnuumhverfi.  Aðgengi er gott þar sem umferð um Krókháls er létt. Engar áætlanir eru um frekari byggingar í nánasta umhverfi og er deiliskipulagið enn í mótum.
Upplagt tækifæri fyrir fyrirtæki sem vilja flytja sig úr stressinu, tengja sig náttúrunni og njóta fegurðar í vinnuumhverfi. Nálægð við náttúru gefur jafnframt fyrirtækjum fjölmarga kosti þar sem sýnt hefur verið fram á að starfsmenn eru ánægðari í náttúrulegu umhverfi og það gefur tækifæri til jákvæðrar ímyndar og sjálfbærni.

Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson,  löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Jöfur ehf.
http://www.jofur.is

Myndir (3)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Esjubraut 49
Skoða eignina Esjubraut 49
Esjubraut 49
300 Akranes
120.8 m2
Atvinnuhúsn.
430 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Flatahraun 21
Skoða eignina Flatahraun 21
Flatahraun 21
220 Hafnarfjörður
25 m2
Atvinnuhúsn.
2
6 þ.kr./m2
150.000 kr.
Skoða eignina Hólmgarður 2
Skoða eignina Hólmgarður 2
Hólmgarður 2
230 Reykjanesbær
93.3 m2
Atvinnuhúsn.
3
520 þ.kr./m2
48.500.000 kr.
Skoða eignina Grænásbraut 506
Grænásbraut 506
262 Reykjanesbær
85 m2
Atvinnuhúsn.
41
527 þ.kr./m2
44.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin