Fasteignaleitin
Skráð 19. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Laugateigur 39

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
111.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
788.341 kr./m2
Fasteignamat
76.950.000 kr.
Brunabótamat
55.350.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1948
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2019374
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Að sögn seljenda voru lagnir fóðrað plasti út í brunn á lóð 2006. Drenlagnir endurnýjaðar að hluta 2004.
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt / endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti að hluta
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Sprungur eru í floti á gólfum vegna galla í undirfloti. Sjá má ummerki eftir leka sem búið er að lagfæra á gólfi í eldhúsi. Einnig lak ísskápur og mynduðust ummerki eftir það í floti á gólfi. Sjá má ummerki um raka í horni í einu barnaherbergjanna. 
Domusnova og Ingunn Björg kynna :  Glæsilega og mikið endurnýjaða 111,5 fm2, 5 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í þrýbílishúsi við Laugateig 39.
Um er að ræða fallega og rúmgóða 5 herbergja íbúð í þríbýlishúsi á þessum eftirsótta stað í Laugardalnum. Á undanförnum árum hefur eignin verið mikið endurnýjuð.

Helstu endurbætur:
  • 2021 Skipulagi íbúðar breitt frá upprunalegri teikningu
  • 2021 Eldhús endurnýjað 
  • 2025 Baðherbergi, hreinlætistæki, blöndunartæki, sturtugler og innrétting endurnýjuð
  • 2021 Gólf flotuð í alrými og svefnherbergjum
  • 2021 Gólfhiti settur í alrými 
  • 2021 Dregið nýtt rafmagn 
  • 2021 Vatnslagnir endurnýjaðar fyrir utan baðherbergi

Íbúðin samanstendur af forstofu, stofu, eldhúsi, 4 svefnherbergjum þar af eitt sem bætt var við inn af eldhúsi sem auðvelt er að fjarlægja, þannig opnast eldhús, borðstofa og stofa í skemmtilegt alrými, baðherbergi og tvær geymslur í sameign hússins. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni þar sem hver er með sína vél. 
Eignarhlutar í húsinu eru þrír. Eignarhluti íbúðar á jarðhæð í húsinu er 32,07% ásamt hlutdeild jarðhæðar í óskiptri lóð 29,04.

Frábær og vel staðsett eign í Laugardalnum. Örstutt í leik - og grunnskóla, Laugardalslaug, íþróttaaðstöðu, tómstundaiðkun og græn svæði. 

Allar upplýsingar um eignina veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Nánari lýsing eignar:
Fremri forstofa:
Innbyggður fataskápur, flísar á gólfi. 
Forstofa: Innan íbúðar, góður fataskápur með rennihurðum.
Eldhús: Falleg innrétting með miklu skúffuplássi, rúmgóð eyja með skúffum og helluborði, tveir bakaraofnar í vinnuhæð, rými fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél. Gluggar á tvo vegu.
Herbergi 1: Þessu herbergi var bætt við inn af eldhúsi eftir að skipulagi var breytt. Auðvelt er að fjarlægja þetta herbergi, þannig opnast eldhús, borðstofa og stofa í skemmtilegt og bjart alrými. Flotað gólf. gólfhiti. 
Stofa: Fín stofa með stórum glugga, flotað gólf, gólfhiti.
Gangur: Stór og rúmgóður skápur, flotað gólf, gólhiti.
Herbergi 2: Rúmgott herbergi sem stúkkað hefur verið af með léttum vegg sem auðvelt er að fjarlægja. Flotað gólf. 
Herbergi 3: Fínt herbergi, flotað gólf. 
Herbergi 4: Rúmgott með fataskáp, flotað gólf.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað , hreinlætistæki, blöndunartæki, sturtugler og innrétting endurnýjuð.  Handklæðaofn. Flísalagt gólf og veggir að hluta, flísar hafa verið málaðar.
Geymslur: Tvær geymslur eru á gangi fyrir framan íbúð. 
Garður og lóð: Fallegur gróinn garður með matjurtarreit. 

Ath! Íbúðin er ekki skv. upprunalegum teikningum. 

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/03/202148.600.000 kr.50.000.000 kr.111.5 m2448.430 kr.
03/09/201839.650.000 kr.47.000.000 kr.111.5 m2421.524 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgartún 24 - íbúð 207
Bílastæði
Borgartún 24 - íbúð 207
105 Reykjavík
80.2 m2
Fjölbýlishús
312
1071 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - Íbúð 401
Opið hús:07. des. kl 13:00-14:00
Heklureitur - Íbúð 401
105 Reykjavík
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 30
3D Sýn
Opið hús:07. des. kl 13:30-14:00
Skoða eignina Sóltún 30
Sóltún 30
105 Reykjavík
108.3 m2
Fjölbýlishús
514
830 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 414
Opið hús:07. des. kl 13:00-14:00
Heklureitur - íbúð 414
105 Reykjavík
76.6 m2
Fjölbýlishús
312
1095 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin