Fasteignaleitin
Skráð 23. júní 2026

Nönnustígur 6

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
160.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
130.000.000 kr.
Fermetraverð
810.474 kr./m2
Brunabótamat
81.500.000 kr.
Byggt 1929
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20784791
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Fallegt 160 fm einbýlishús á þremur hæðum á grónum stað við Nönnustíg í Hafnarfirði. Mögulegt er að hafa aukaíbúð með sérinngang í kjallara. 4-5 svefnherbergi eru í húsinu. Húsið hefur töluvert verið endurnýjað á síðustu árum. Snyrtilegur garður og falleg gata.

Samkvæmt skráningu er birt flatarmál eignarinnar 160,4 fm. Kjallari er skráður 48,4 fm, aðalhæð er skráð 57,1 fm og rishæð er skráð 54,9 fm. Geymsluloft er yfir rishæð.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu á miðhæð með flísum á gólfi. Úr forstofu er komið inn í opið rými með parketi á gólfi sem samanstendur af stofu, eldhúsi og borðstofu. Stofan er björt og rúmgóð. Eldhúsið er fallegt og er opið yfir í stofu með eyju á milli. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir í suðvestur. Af gangi hæðarinnar er stigi upp á efri hæðina og niður í kjallarann. 
Efri hæðin: Komið er inn á gang. Á hægri hönd á gangi er flísalagt baðherbergi með innréttingu og baðkari. Á hæðinni eru einnig tvö parketlögð barnaherbergi og teppalagt hjónaherbergi með fataherbergi innaf. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir í norðvestur. 
Kjallari: Gengið er niður á flísalagt hol og þaðan í parketlagða stofu. Sérinngangur er einnig að utan í holið svo mögulegt væri að hafa þar auka íbúð. Innaf stofu er rúmgott herbergi með plastparketi á gólfi. Á vinstri hönd úr holi er komið inn í þvottahús.

Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum að sögn eiganda. Árið 2022 var skipt um tvo glugga á efstu hæð. Árið 2020 var miðhæð tekin í gegn. Skipt um einangrun, rafmagn, rafmagnstöflu og lagnir upp á efri hæð, ný eldhúsinnrétting og tæki. Þá var smíðaður pallur fyrir framan húsið. Árið 2016 var húsið málað að utan, garðurinn lagaður og drenað. Þá var skipt um timburlista m.a. meðfram gluggum. Nýtt handrið á útitröppur og nýjar rennur á þak. Árið 2015 var skipt um um klósett, bað, vask, gler á miðhæð, lagnir að húsi inn í þvottahús (heitt og kalt, skolp, rafmagn, ljósleiðara). Þá voru steyptar nýjar útitröppur.

Húsið er vel staðsett í gamla bænum við Hellisgerði og rétt um fimm mínútna göngufæri frá miðbænum og Víðistaðaskóla.
 
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 6
Screenshot 2026-07-17 at 16.18.54.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
152.8 m2
Fjölbýlishús
524
717 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Skoða eignina Krosseyrarvegur 14
Opið hús:22. júlí kl 12:15-12:45
Krosseyrarvegur 14
220 Hafnarfjörður
107.7 m2
Einbýlishús
312
924 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Ægisgata 28
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Ægisgata 28
Ægisgata 28
600 Akureyri
171.8 m2
Einbýlishús
624
651 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Fléttuvellir 32
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Fléttuvellir 32
Fléttuvellir 32
221 Hafnarfjörður
214.4 m2
Einbýlishús
524
770 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin