Grettisgata 46, 101 Reykjavík er vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 1936. Um er að ræða 80,6 fermetra eign sem skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og sérgeymslu í sameign.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 80,6 fm þar af er 9,8 fm geymsla | Fasteignamat 2023 er 54.650.000,-
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er úr sameign inn í forstofu. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús með hvítum innréttingum og góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með parket á gólfi. Innangengt í kalda geymslu þaðan sem gengið er inn í lokað útiport.
Svefnherbergi II: Rúmgott og bjart með einföldum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Með hvítri vask innréttingu, upphengdu salerni og góðum sturtuklefa. Tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi.
Geymsla: 9,8 fm sérgeymsla í sameign.
Lóðin: Sameiginlegt port í bakgarði.
Eignin er staðsett á afar góðum stað í miðbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í menningu, iðandi mannlíf og alla helstu þjónustu og verslanir.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið oddny@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Kynntu þér
fasteignaþjónustu Procura og
nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.