Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Kambahraun 51, 810 Hveragerði.
Glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á einstökum stað við Hamarinn.
Eignin er samtals 185,5 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands; þar af er íbúðin 136,5 m² og bílskúrinn 49,0 m².
Eignin telur forstofu, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Garðurinn er einstakur verðlaunagarður og umhverfið allt í kringum húsið er virkilega smekklegt og fallegt.
Hellulagt bílastæði fyrir framan bílskúr, heitur pottur, rúmgóð geymsla á baklóð og náttúran allt um kring.
Virkilega falleg eign á eftirsóttum stað.
Sjá staðsetningu hér:
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forstofa er flísalögð. Þar er fatahengi með skúffum.
Stofa, borðstofa og eldhús eru saman í opnu rými. Vönduð innrétting er í eldhúsi og gott vinnupláss.
Svefnherbergin eru þrjú.Hjónaherbergi er rúmgott.
Barnaherbergin tvö eru bæði með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt wc, "walk-in" sturta, baðkar, innrétting með handlaug og handklæðaofn.
Gestasnyrting er flísalögð. Þar er upphengt wc og handlaug.
Þvottahús er með útgengi á baklóð en þar er innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara og gott vinnupláss.
Húsið var fullbyggt og klárað árið 2012 og endurspeglar skipulag, ástand og frágangur það ár. Eldri skráning byggingarárs endurspeglar ekki raunverulegt byggingarferli eða núverandi ástand eignarinnar.
Hér er um að ræða heimili sem hefur verið byggt upp af núverandi eigendum með áherslu á vandaða lausnir, gott rými og notalegt andrúmsloft.
Umhverfi hússins er einstakt. Bæði má þar nefna nálægðin við Hamarinn en eignin er staðsett innst í botnlanga og mikið rými er í kringum eignina.
Garðurinn er verðlaunagarður og mikið hefur verið gert til að gera allt umhverfið sem snyrtilegast og notagildið mikið. Hellulagt er að eigninni, stórir gróðurkassar eru á baklóð, mikið er af fallegum gróðri, heitur pottur og næðið og skjólið á baklóð við Hamarinn er virkilega eftirsóknarvert.
Hellulagt bílastæði er fyrir framan bílskúrinn og góð geymsla er fyrir aftan bílskúrinn.
Gólfefni eignarinnar er flísar.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.