Fasteignaleitin
Skráð 5. okt. 2026

Grettisgata 49

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
152 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
134.900.000 kr.
Fermetraverð
887.500 kr./m2
Brunabótamat
64.700.000 kr.
Byggt 1920
Svalir
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20054711
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Aldir Fasteignir og Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignaslai s: 896-6160 / erla@aldirfasteignir.is kynna:
4 herbergja 152 m² einbýlishús við í Grettisgötu 49.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 152 m² merkt 01-01, samtals 152 m² að stærð.

Nánari upplýsingar um eign:
Fallegt og sjarmerandi einbýlishús á eignarlóð við Grettisgötu í hjarta miðborgar Reykjavíkur, byggt árið 1920. Húsið ber með sér klassískan karakter og sögu sem einkennir eldri byggð miðborgarinnar. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið skráð 152 m² að stærð, en raunverulegt gólfpláss er líklega meira þar sem rými undir súð nýtast vel. Skipulag hússins býður upp á notaleg og björt rými með miklum möguleikum. Húsinu hefur verið vel viðhaldið og nýlega endurnýjað með áherslu á einangrun, lagnir og nútímalegt baðherbergi, sem sameinar sjarma eldri byggingar við þægindi nútímans. Staðsetning eignarinnar er einstaklega eftirsóknarverð, í göngufæri við helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningarlíf miðborgarinnar.

Miðhæð:
Forstofa flísalögð (málaðar flísar)
Stofa/borðstofa í opnu rými með krossviði á gólfum tilbúið fyrir parketlögn
Eldhús parketlagt með borðkrók og snyrtilegri hvítri innréttingu
Baðherbergi flísalagt baðherbergi með sturtu

Ris:
Svefnherbergi stórt parketlagt herbergi (upphaflega tvö rými sameinuð), útgengt á rúmgóðar svalir og lítið salerni með flísum á gólfi

Kjallari:
Herbergi 1 rúmgott herbergi samkvæmt upplýsingum frá eigendum hefur gólf verið einangrað og tilbúið fyrir parketlögn
Herbergi 2 mjög rúmgott teppalagt herbergi niður nokkrar tröppur
þvottahús með steingólfi
Geymslur góð geymsla er í kjallara þar eru inntök fyrir húsið, jafnframt er köld geymsla undir forstofu með aðgengi úr garði

Lóðin garðurinn er afgirtur - tvö bílastæði eru við húsið þar af eitt sem rúmar mögulega tvo bíla

Eftirfarandi endurbætur hafa verið gerðar á húsinu skv. upplýsingum frá eigendum: 
Rafmagn: Rafmagn í húsinu endurnýjað að miklu leyti. Skv. upplýsingum frá fyrri eiganda voru raflagnir í eldhúsi endurnýjaðar sem núverandi eigendur geta ekki staðfest.
Lagnir: Skipt um klóak lögn í kjallara og í garði. Nýjar vatnslagnir og frárennslislagnir á nokkrum stöðum. 
Einangrun: Loftaklæðning endurnýjuð og loft einangruð í flestum rýmum, einangraðir veggir og gólf að hluta í kjallara. 
Upphitun: Ofnalagnir endurnýjaðar og nýir ofnar að hluta. 
Gluggar: Gluggar í kjallara hafa verið endurnýjaðir með tilliti til flóttaleiða. 
Baðherbergi: Nýlega flísalagt baðherbergi og nýtt salerni (ca. 3 ára). 
Útihús: Skúr sem er u.þ.b. 7-8 fm, einangraður, með rafmagni, reistur í sama stíl og húsið. 
Borðstofa: Mögulegt er að flytja eldhúsið í borðstofu (búið að leggja rafmagn) og breyta núverandi eldhúsi í herbergi.

Þar sem um er að ræða hús sem er yfir 100 ára gamalt er kaupendum ráðlagt að láta ástandsskoða eignina af viðurkenndum fagaðila.

Nánari upplýsingar um eign veitir:
Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s. 896-6160 eða erla@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringbraut 120
Bílastæði
Heitur pottur
Skoða eignina Hringbraut 120
Hringbraut 120
101 Reykjavík
153 m2
Fjölbýlishús
323
1143 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 120
Bílastæði
Skoða eignina Hringbraut 120
Hringbraut 120
101 Reykjavík
154,7 m2
Fjölbýlishús
423
1324 þ.kr./m2
204.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 5 (Vesturvin 3) 108
Opið hús:07. okt. kl 17:00-17:30
stebbi_vefur (27).png
Ánanaust 5 (Vesturvin 3) 108
101 Reykjavík
139,3 m2
Fjölbýlishús
423
858 þ.kr./m2
119.450.000 kr.
Skoða eignina Starhagi 6
Hleðslustöð
Skoða eignina Starhagi 6
Starhagi 6
107 Reykjavík
345,9 m2
Einbýlishús
1034
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin