Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Básahraun 13, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða fallegt, bjart og vel skipulagt 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Birt heildarstærð eignarinnar er 171,3 fm. þar af er íbúðarhluti 129,9 fm. og bílskúr 41,4 fm. Umhverfis húsið er gróðursæll og fallegur garður með suðvestur sólpall með heitum potti. Húsið er vel staðsett í rólegu hverfi.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri, eldhús / borðstofa, stofa, gangur, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús / salerni og sturta og bílskúr (geymsla).
Nánari lýsing: Anddyri: Rúmgott anddyri með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa, fallegur arinn setur hlýlegan svip á rýmið, flísar á gólfi.
Eldhús / borðstofa: Rúmgott eldhús með góðri innréttingu, eyju með skúffum og skápum, stóru spanhelluborði, háfur og bakstursofni. Góð aðstaða fyrir stórt borðstofuborð og útgengi á sólpall, flísar á gólfi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja ekki með við sölu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, flísar á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með góðum fataskáp, flísar á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott herbergi með góðum fataskáp, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, nýleg opin sturta (walk-in), vegghengt salerni og flísar á gólfi og veggjum.
Gangur: Flísar á gólfi.
Þvottahús / Salerni og sturta: Með vinnuborði og vask, veggskápur, innangengt í bílskúr, flísar á gólfi. Inn af þvottahúsinu er salerni og sturta, flísar á gólfi og veggjum.
Bílskúr: Stærð 41,4 fm., rúmgott geymsluloft, tvær gönguhurðir, rafdrifinn bílskúrshurðaopnari, innangengt úr þvottahúsi, heitt og kalt vatn, þriggja fasa rafmagn, flísar á gólfi. Samkvæmt teikningu er geymsla í enda bílskúrs, en veggir hafa verið fjarlægðir að hluta.
Húsið og lóðin: Húsið er staðsteypt, steinað að utan og með gluggum úr mahóníviði. Byggingarár er 2005. Gólfhiti er í húsinu og innfelld lýsing í stofu, borðstofu og eldhúsi. Umhverfis húsið er 747,4 fm. gróin lóð. Stór malbikuð innkeyrsla er framan við húsið, auk malbikaðra svæða á norðurhlið og aftan við bílskúr. Steypt stétt liggur að húsi og með fram vesturhlið. Á suður- og vesturhlið er sólpallur með heitum potti.
Básahraun 13 er virkilega falleg og vel skipulögð eign í rólegu íbúðarhverfi í Þorlákshöfn. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug, íþróttahús og aðra helstu þjónustu. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er nýr leikskólinn Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.