SELJANDI SKOÐAR ÖLL SKIPTI Á ÓDÝRARI EIGNUM LÍKA IÐNAÐARHÚSNÆÐUM RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Sérlega fallegt 7 herbergja einbýlishús með mikilli lofthæð og fallegu ÚTSÝNI yfir Úlfarsárdalinn. Húsið stendur neðarlega í dalnum á skjólgóðum stað í hverfinu.
Eignin er sérlega vel staðsett hvað varðar skjól í hverfinu en á sama tíma er þó fallegt ÚTSÝNI yfir dalinn. Leik- og grunnskóli er í ca 100 m göngu sem og allt íþróttasvæði FRAM ásamt nýlegri sundlaug og bókasafni.
Húsið er byggt 2020 og er á tveimur hæðum með einhalla þaki og innbyggðum bílskúr. Húsið er bæði einangrað að utan og innan og klæðning er EQUITONE frá Málmtækni. Allir gluggar eru frá Húsasmiðjunni og allt gler er K-gler.SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS* ÚTSÝNI * - * Mikil lofthæð *
* Hitalögn í plani * - * Rafhleðslustöð *
* Þrjú baðherbergi * - * Stórt þvottahús *
* Fjögur herbergi - þar af er HJÓNASVÍTA *
* Granít í eldhúsi og öllum baðherbergjum *
* Allar innihurðar eru frá Birgisson *
* Lóð er nýlega tyrfð *
* Bílskúr er með góðum innréttingum og rafdrifinni hurð *Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isSamkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 213,5 fm og þar af er bílskúrinn 23,0 fm.Nánari lýsing eignar: Innan íbúðarrýmis er forstofa, 4 herbergi, eldhús, stofa, borðstofa, 3 baðherbergi, sjónvarpsstofa og þvottahús.
Efri hæð: Á efri hæðinni er forstofa, 1 herbergi, baðherbergi, eldhús, stofa, borðstofa og bílskúr.Komið er inn í eignina á efri hæð hússins inn í bjarta og rúmgóða
forstofu með parketflísum á gólfi og stórum tvöföldum fataskáp með speglum og er Akupanel klæðning á hliðunum.
Við
forstofuna er herbergi, baðherbergi (sem nú er nýtt sem skrifstofa) og er einnig innangengt í bílskúrinn.
Herbergið /
Herbergi IV er í góðri stærð með parketflísum á gólfi.
Baðherbergið er með upphengdu salerni, innréttingu undir sérsmíðaðri handlaug úr granít og sturtu en þó án sturtuglers
(samkomulagsatriði hvort seljendur setji upp sturtugler), gluggi til loftunar, hvítar flísar á veggjum en parketflísar á gólfi.
Bílskúrinn er 23,0 fm með rafdrifinni hurð, mikilli lofthæð, gríðarlega miklu skápaplássi
(sem nýtist vel sem snyrtileg geynsla), vinnuborð, tenging fyrir vask á tveimur stöðum, lögn fyrir 3ja fasa rafmagni, flísar á gólfi og útgönguhurð á austurhlið bílskúrsins.
Úr forstofu er komið inn í opið bjart rými þar sem
eldhús, stofa og bortðstofa eru samliggjandi með parketflísum á gólfi.
Í eldhúsinu er hvít háglans innrétting frá IKEA
með gríðarlega miklu skápa og skúffuplássi. Öll tækin er einnig frá IKEA en Granítborðplata frá Steinprýði. Í eldhúsinu er innbyggður ísskápur, innbyggður frystiskápur, innbyggð uppþvottavél, span helluborð og upphengdur bakaraofn. ATH. gert er ráð fyrir því að hægt sé að hafa tvo bakaraofna í innréttingunni og einnig í rafmagnslögninni. Einnig er hægt að breyta eldhúsinu á þann hátt að setja vaskinn í eyjuna vatnslögn er einnig í eyjunni.
Stofan og borðstofan tengjast vel við eldhúsið og er mikil lofthæð eða 3,91M þar sem hæst er, stórir og miklir gluggar til þriggja átta og fallegt útsýni yfir dalinn. Gólfsíðir gluggar eru í borðstofunni og er útgengt á svalir til suðurs. Bráðabirgða svalahandriði er þar á.
(samkomulagsatriði er hvort að seljendur klári svalirnar að fullu)Stiginn niður á neðri hæðina er steyptur og er búið að setja undirlag fyrir teppalögn. Handriðið er bráðabirgða en þó er samkomulagsatriði hvort að seljandi setji upp varanlegt handriði en verð eignar miðast við eignina eins og hún er í dag.
Neðri hæð: Á neðri hæðinni eru 3 herbergi, 2 baðherbergi, fataherbergi, þvottahús og sjónvarpsstofa.Komið er niður á neðri hæðina í mjög rúmgóða
sjónvarpsstofuna sem er einnig miðrými neðri hæðar með parketflísum á gólfi og með útgengi í garðinn.
Baðherbergið er mjög rúmgott og er þar baðkar af stærri gerðinni, tvöföld flísalögð walk-in sturta, upphengt salerni, góð innrétting undir og við handlaug, granít borðplata, hvítar flísar á veggjum en parketflísar á gólfi og hluta veggja í sturtunni. Útgengt er í garðinn frá baðherbergi og er einnig gluggi til loftunar.
Herbergin eru þrjú á neðri hæðinni og eru þau öll í mjög góðri stærð.Herbergi I og II eru barnaherbergin með glugga til suðurs og parketflísar eru á gólfi.
Herbergi III er
Hjónasvítan sem er mjög rúmgóð. Þar innaf er rúmgott
fataherbergi með skápum frá IKEA. Einnig er
baðherbergi innaf hjónasvítu með upphengdu salerni, sturtu, innréttingu undir handlaug með granít borðplötu, parketflísar á gólfi og hluta veggjar, hvítar flísar á hluta vegjjar og glugga til loftunar.
Þvottahúsið er virkilega vel skipulagt m/góðri innréttingu með vaski, tauskúffum undir þvottavél og þurrkara, góðum skúffum undir lín og aðrar nauðsynjar. Tvöfaldar uppdraganlegar þvottasnúrur og parketflísum á gólfi.Garðurinn: Húsið stendur á 355,0 fm lóð og var lóðin tyrfð í haust og er steyptur stig meðfram húsinu vestan megin. Ídráttarrör PH - fyrir lagnir í heitan/kaldan pott fylgja með.
Við inngang í húsið er steypt plan norðan megin og er snjóbræðsla í planinu. Rafhleðslustöð fylgir með eigninni.Öryggisúttekt er verið að klára. Húsið er á byggingastigi B2 en verður skilað á B3 - staðla HÉR hjá HMSUm er að ræða virkilega góða fjölskyldu eign í virkilega góðu samfélagi í Úlfarsárdalnum þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir á Úlfarsfellið. Einnig er sundlaugin, íþróttasvæði FRAM, grunnskóli og leikskóli í stuttu göngufæri, Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.Heimasíða RE/MAX
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk