Fasteignasalan TORG kynnir í sölu: Vel skipulögð, 122,1 fm, þriggja til fjögurra herbergja íbúð á fimmtu hæð með glæsilegu útsýni við Glósali 7, Kóp. Eignin skiptist í anddyrishol, eldhús, stofu, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og bílastæði í lokuðum kjallara. Svalir eru til suðurs og eru yfirbyggðar. Sér geymsla (7,3 fm) og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Um er að ræða fallega eign fyrir þá sem vilja fallegt útsýni, gott skipulag og fjölskylduvæna staðsetningu í vinsælu hverfi. Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lög. fasteignasali í síma :690-4966 eða á matthildur@fstorg.is
NÁNARI LÝSING :
Komið er inn í rúmgott anddyrishol með skáp, sem tengir rými eignar.
Eldhús er hálf lokað inn í stofu og er með viðarlituðum innréttingum og gráyrjóttri borðplötu, ofn í vinnsluhæð og pláss fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Stofa er björt og opin, með útgengi á 7,7 fm, yfirbyggðar svalir til suðurs með glæsilegu útsýni. Stofa hefur verið stækkuð með því að opna inn í eitt af svefnherbergjunum en auðvelt er að loka því af aftur og gera þriðja herbergið.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðu skápaplássi.
Barnaherbergið er einnig mjög rúmgott og bjart og með skáp.
Barnaherbergi II hefur verið opnað inn í stofu, auðvelt er að setja upp vegg og loka því af aftur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, hvít skápainnrétting undir vaski og á vegg, upphengt salerni, baðkar og sturtuklefi og gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottaherbergi er innan íbúðar með innréttingu með góðu skápaplássi og plássi fyrir þvottavél.
Eigninni fylgir sérmerkt stæði í snyrtilegri og upphitaðri bílageymslu með þvottaaðstöðu.
Sameignin er einstaklega snyrtileg og vel við haldið. Tvær lyftur eru í húsinu. Lóðin er einnig vel frágengin og næg bílastæði eru fyrir framan húsið.
Eignin er staðsett í vinsælu, rólegu og fjölskylduvænu Salahverfinu í Kópavogi þar sem stutt er í leikskólana Fífusali og Rjúpnahæð, Salaskóla, Salalaugina, verslanir, þjónustu og fjölbreytta útivist.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.