Fasteignaleitin
Skráð 14. feb. 2026

Haukahlíð 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
54.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.500.000 kr.
Fermetraverð
1.146.789 kr./m2
Fasteignamat
64.100.000 kr.
Brunabótamat
41.850.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2507454
Landnúmer
221262
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
0,25
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Haukahlíð 1, 102 Reykjavík.
Glæsileg 2ja herbergja íbúð á 4. hæð með vestursvölum og bílastæði – 54,5 fm.

Bókið skoðun hjá Jóni Smára Einarssyni lögg. fasteignasala í gegnum netfangið jonsmari@fasteignaland.is eða í síma 8606400.

Falleg, björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi á hinu eftirsótta Hlíðarendasvæði.
Eignin er skráð sem hér segir hjá HMS: Íbúðin er merkt 3-0407, alls 54,5 fm að stærð, þar af er íbúðarrými 46,7 fm og sérgeymsla í sameign 7,8 fm (merkt 3-0027). Vestursvalir eru 5,4 fm og fylgir einkastæði í bílakjallara nr. N039.

Hlíðarendi býður upp á einstakt tækifæri til umhverfisvæns lífstíls þar sem allt er í göngufæri – menntastofnanir, miðbær, menning, stórir vinnustaðir, útivist og fjölbreytt tómstundastarf.


Skipulag
Forstofa/anddyri með fataskápum
Baðherbergi flísalagt með hita í gólfi með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, walk-in sturtu, handklæðaofni og plássi fyrir þvottavél og þurrkara 
Svefnherbergi (hjónaherbergi) með fataskáp og ljósu harðparketi
- Bjart aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu í opnu rými
- Eldhús er með innbyggðum ísskáp/frysti, innbyggðri uppþvottavél, spanhelluborði og gufugleypi
- Útgengi úr stofu á vestursvalir 5,4 fm
Sérgeymsla í kjallara 7,8 fm og hátt til lofts
Einkabílastæði í lokaðri bílageymslu, gert er ráð fyrir hleðslustöð
- Sameiginleg vagna og hjólageymsla

Frágangur og búnaður
- Vönduð eldhúsinnrétting og tæki
- Innfelldur ísskápur og uppþvottavél
- Ljóst harðparket á gólfum í alrými og herbergi
- Baðherbergi með walk-in sturtu
- Lyftuhús

Húsið og lóðin
Um er að ræða glæsilegt fjöleignarhús við Haukahlíð 1 í hjarta póstnúmers 102 – steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur en utan skarkala hans.

Fjórar húsagötur umlykja bygginguna. Í henni eru alls 191 íbúð, sem skiptast á 11 stigaganga og eru húsin þriggja til fimm hæða. Húsin mynda krans umhverfis inngarðinn sem liggur á tveggjahæða bílakjallara með alls 193 stæðum og 13 bílskúrum.
Ekkert atvinnurými er í byggingunni.
Garðurinn er glæsilegur sælureitur með m.a. grasi, leiktækjum og bekkjum og með góðu skjóli. Upphitaðar gönguleiðir að hluta til með snjóbræðslu.

Staðsetning og nærumhverfi
Staðsetningin er ein sú besta í Reykjavík:
Í göngufæri er:
- miðbærinn – veitingahús, söfn, tónleikastaðir og Tjörnin
- Sundhöllin
- Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík
- Landspítali háskólasjúkrahús
- Öskjuhlíð og Nauthólsvík
- íþróttasvæði Vals
- aðstaða Mjölnis í Öskjuhlíð
- verslunarkjarninn Kringlan

Fullbúin íþróttaaðstaða er innan Hlíðarendasvæðis og svæðið er sérstaklega hentugt fyrir bæði einstaklinga og fjölskyldur.

Frábær fyrstu kaup eða fjárfesting á einum vinsælasta stað borgarinnar.

Nánari upplýsingar veitir 
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
Netfang: jonsmari@fasteignaland.is
sími: 860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/11/202457.750.000 kr.45.000.000 kr.54.5 m2825.688 kr.Nei
01/10/20204.030.000 kr.43.700.000 kr.54.5 m2801.834 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2507454
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
N0
Númer eignar
39
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.500.000 kr.

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 53
Bílastæði
Opið hús:10. apríl kl 16:00-16:30
Skoða eignina Holtsvegur 53
Holtsvegur 53
210 Garðabær
136.2 m2
Fjölbýlishús
423
954 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (201)
0S6A2067.jpg
Eirhöfði 7a (201)
110 Reykjavík
136.4 m2
Fjölbýlishús
413
1004 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7d (119)
7D 119.jpg
Eirhöfði 7d (119)
110 Reykjavík
114.8 m2
Fjölbýlishús
312
940 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Frakkastígur 8C
Frakka 149.5.jpg
Skoða eignina Frakkastígur 8C
Frakkastígur 8C
101 Reykjavík
130 m2
Fjölbýlishús
423
1150 þ.kr./m2
149.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin