Fasteignaleitin
Skráð 3. nóv. 2026

Laxakvísl 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
93.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
791.221 kr./m2
Fasteignamat
70.850.000 kr.
Brunabótamat
56.200.000 kr.
Mynd af Salvör Þóra Davíðsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Jarðhæð af 2
Garður
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2043992
Landnúmer
110943
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta/upprunalegt
Þak
Endurnýjað 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, 2 svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugað viðhald á ytra byrði fjölbýlis sumarið 2027 - engin tilboð liggja fyrir. Sjá nánar  (1) Yfirlýsingu hússfélags - Laxakvisl 2-6, dags. 05.11.2026, (2) Yfirlýsing hússfélags - Laxakvísl 2, dags. 05.11.2026, (3) Laxakvisl 2-6, húsfélag - Aðalfundargerð, dags. 11.05.2026, (4) Laxakvísl 2, húsfélag - Fundargerð dags. 20.11.2023 og (5) Verksýn - Ástandsskýrsla, dags. ágúst 2025.
Kvöð / kvaðir
Sjá þinglýstan lóðarleigusamning (411-E-001017/1985.1:  Kvaðir um bílast. og um lagnir Borgarsjóðs og skilmála borgarverkfr. um frág og  mannv. og Óheimilt að selja bílskúr eða aukabygg. frá íbúðarhúsi)
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA

RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is) & SALVÖR ÞÓRA Lgf. (salvor@remax.is) KYNNA:
Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Laxakvísl 2 í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Ártúnsholti. 

HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR
  • 93,4 m² vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð.
  • Tvö rúmgóð svefnherbergi og bjart alrými.
  • Suðursnúinn garður með verönd og aðgengi út í lóð.
  • Lítið og snyrtilegt fjölbýlishús, aðeins fjórar íbúðir í stigagangi.
  • Umfangsmiklar framkvæmdir á þaki og gluggum í sameign árið 2026.
  • Vel rekið húsfélag og snyrtileg sameign.
  • Rólegt og fjölskylduvænt umhverfi, stutt í skóla, þjónustu og útivist.
  • Góðir leigjendur eru í eigninni - hafa áhuga á áframhaldandi leigu, sé þess kostur.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Salvör Þóra löggiltur fasteignasali s: 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is.

NÁNAR UM EIGN
Eignin er skráð 93,4 m² hjá HMS og samanstendur af rúmgóðu alrými og eldshúsi, 2 svefnherbergjum, þvottahúsi innan eignar, baðherbergi, sérgeymslu og hjóla/vagnageymslu í sameign ásamt góðri suðurverönd með aðgengi að sameiginlegum  grónum garði. Húsið hefur nýverið fengið gott viðhald að utan. 

NÁNARI LÝSING
Forstofa: Komið er inn í bjart og rúmgott hol með góðu aðgengi að öðrum rýmum eignarinnar.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með góðum gluggum og viðarparketi á gólfi. Rýmið býður upp á fjölbreytta möguleika við uppröðun húsgagna og góða aðstöðu fyrir bæði setustofu og borðstofu. Auðvelt að opna rýmið þar sem flestir veggir eru léttir.
Eldhús: Bjart og vel skipulagt eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Innrétting er að mestu upprunaleg en vel um gengin. 
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og aðgengi út á lokaða netta austurverönd.
Svefnherbergi II: Gott herbergi sem hentar vel fyrir yngra mannfólkið eða sem vinnuaðstaða. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með rúmgóðri "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og góðri eldri innréttingu. Gluggi og opnanlegt fag. 
Þvottahús: Sérstök þvottaaðstaða og geymsla er innan íbúðar.
Geymsla: Geymslurými tilheyrir eigninni.
Sameign og lóð: Snyrtilegur stigagangur með tiltölulega nýlegu teppi. Í stigaganginum eru aðeins fjórar íbúðir, tvær á hvorri hæð. Sameiginlegur og snyrtilegur gróinn suðurgarður með grasflöt. Gott leiksvæði með leiktækjum að framanverðu.
Bílastæði: Fyrir framan húsið er einnig stórt og rúmgott bílastæði með nægum bílastæðum fyrir íbúa. 

VIÐHALD OG FRAMKVÆMDIR
Á árinu 2026 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á húsinu, meðal annars var farið í gluggaskipti í sameign, endurnýjun á þaki, þakköntum og þakrennum ásamt uppsetningu snjóvarna. Þessar framkvæmdir hafa verið greiddar að fullu af seljanda. Ástandsskýrsla frá Verksýn liggur fyrir og fyrri framkvæmdir liður í því viðhaldi sem þar er talið upp. Áframhaldandi viðhald  fyrirhugað á ytra byrði á næstu árum - tilboð liggja ekki fyrir.
Íbúðinni sjálfri hefur verið vel viðhaldið þó innviðir séu að miklu leiti upprunalegir. Miklir möguleikar til breytinga fyrir þá sem vilja ráðast í slíkt verkefni. 

STAÐSETNING OG NÆRUMHVERFI
Laxakvísl 2 er í rólegu og grónu íbúðahverfi í Ártúnsholti þar sem stutt er í alla helstu þjónustu í Árbæ og Höfða, skóla og leikskóla, íþróttir og tómstundir. Nærumhverfið býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og hreyfingar, meðal annars í Elliðaárdalnum, auk þess sem Árbæjarsafn er í nágrenninu. Staðsetningin sameinar friðsælt íbúðaumhverfi með þægilegar samgöngur og tengingar við stofnbrautir.

LEIGUSAMNINGUR
Eignin er í útleigu til 31. mars 2027. Í íbúðinni búa góðir leigjendur sem hafa lýst yfir áhuga á að framlengja leigusamninginn, sé þess kostur. Eignin gæti því einnig hentað vel til fjárfestingar fyrir kaupendur sem hyggjast halda áfram útleigu.
Nánari upplýsingar um leigusamning og afhendingu veita fasteignasalar.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á netfangið salvor@remax.is
     Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is


-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!
- Salvör Þóra, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
- Hera Björk, lgf í síma 774-1477 eða herabjork@remax.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðhöfði 17 (404)
Bílastæði
Breiðhöfði 17 (404)
110 Reykjavík
99,3 m2
Fjölbýlishús
312
1107 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Krummahólar 8
Bílastæði
Opið hús:26. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Krummahólar 8
Krummahólar 8
111 Reykjavík
104,2 m2
Fjölbýlishús
312
573 þ.kr./m2
59.700.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17 (206)
Bílastæði
Breiðhöfði 17 (206)
110 Reykjavík
109,1 m2
Fjölbýlishús
413
1053 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Veghús 31
Skoða eignina Veghús 31
Veghús 31
112 Reykjavík
92,2 m2
Fjölbýlishús
412
747 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin