Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Hafraholt 4 Ísafirði - ATH Laust fljótlega til afhendingar.
Fallegt raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr, húsið var byggt árið 1979 og er samtals 166,8 m², þar af er hús 144,4 m² og bílskúr 22,4m². Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, forstofa, baðherbergi, þvottahús, eldhús, rúmgóð stofa og borðstofa, hol og geymsluloft.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er með flísum og hita í gólfi, falleg innrétting með eikaráferð, helluborð, ofn og vifta, tengi fyrir uppþvottavél.
Samliggjandi rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt á sólpall úr stofu.
Baðherbergi með flísum og hita í gólfi, innrétting, upphengt salerni, baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Annað minna svefnherbergi með parketi á gólfi.
Efri hæð:
Hringstigi upp á efri hæð úr holi.
Á efri hæð er stigapallur með harðparketi, nýtist sem vinnuaðstaða.
Tvö ágæt svefnherbergi með harðparketi á gólfum.
Rúmgott geymsluloft.
Bílskúr er skráður 22,4 fm. steypt gólf, timburhurð og geymsluloft.
Gott malbikað bílaplan fyrir framan hús.
Framkvæmdir að sögn seljenda:
Janúar 2018, settir nýjir plastgluggar á efri hæð. Júlí 2018 skipt um allar lagnir í bílaplani, drenað og malbikað, ljósleiðari lagður inn í hús. Sumarið 2021 voru settir nýjir plastgluggar í eldhús og þvottahús, þakkantur styttur, skipt um þakrennur, þakpappa og skrúfur í þaki.
Seljendur eru byrjuð á endurnýjun á efra þaki.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
400 | 147 | 58 | ||
450 | 168.7 | 59,2 | ||
340 | 188.8 | 56 |