Fasteignaleitin
Skráð 15. sept. 2026

Atlavík 8 - 12

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
85 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
704.706 kr./m2
Byggt 2025
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
25201401
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Atlavík 8 -12 sem eru staðsettar í hinu svokallaða Jórvíkur hverfi á Selfossi. http://www.jorvik800.is
Íbúðirnar eru samþykktar af HMS og gefst kaupendum því kostur á að fá 20% hlutdeildarlán frá HMS samkvæmt reglum stofnunarinnar þar um.


Um er að ræða þrjú ný fjölbýlishús á tveimur hæðum. Í hverju húsi eru sex íbúðir. Húsin eru byggð úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni hf., einangruð að utan og klædd með vandaðri álklæðningu frá Límtré/Vírnet. Gluggar og hurðar eru frá Húsasmiðjunni og eru framleiddir af danska glugga og hurðaframleiðandanum rationel. Handriði á stigum, svalagöngum og svölum eru úr hertu öryggisgleri. Allar íbúðirnar eru með loftskiptakerfi sem tryggir hámarks loftgæði og rétt rakastig innan íbúðar.
Allur lóðafrágangur er vandaður, bílaplön eru malbikuð, gangstéttar hellulagðar með snjóbræðslu og rafhleðsla fyrir rafmagnsbíla er frágengin og tilbúin til notkunar, bílarafhleðsukerið er frá amper, sjá nánar á http://www.amper.is

Í Atlavík 8 - 12, eru samtals um 18 íbúðir sem eru á bilinu 82,2 til 85,0 fermetrar samkvæmt fasteignamati, verð á endaíbúðum er kr. 59.900.000.- en á miðjuíbúðum kr. 58.900.000.-
Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum.


Íbúðirnar telja samkvæmt teikningu: 
Forstofu, alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús og geymslu. 

Forstofa er flísalagt með fataskáp.
Alrými er með harðparketi á gólfum, úr stofu er útgengt á svalir annarrar hæðar en hellulagða verönd á neðri hæð.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu frá VOKE III, http://www.voke3.com með innbyggðum kæli og frystiskáp, innbyggðri uppþvottavél, ofni og span helluborði.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu en í hjónaherbergi er rúmgóður fataskápur og í auka herberginu er mjög rúmgóður fataskápur einnig.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum við sturtu og salerni, baðinnrétting fylgir með speglaskáp. Inn á baðherbergi er þvotta aðstaða, haganlega fyrir komið í innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í þægilegri vinnuhæð og góðar skúffur undir.
Geymsla er innan íbúðar með flísum á gólfi.

Allar nánari upplýsingar veita: 
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgarheiði 4V
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Borgarheiði 4V
Borgarheiði 4V
810 Hveragerði
95,9 m2
Raðhús
412
656 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Grensás 34
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 34
Grensás 34
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
43
480 þ.kr./m2
49.000.000 kr.
Skoða eignina Grensás 32
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 32
Grensás 32
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grensás 30
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 30
Grensás 30
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin