Afar falleg og björt 4 herbergja íbúð á annarri hæði í góðu fjölbýli á vinsælum stað í Suðurbæ Hafnarfjarðar. Mikið endurnýjuð eign og stutt í alla helstu þjónustu
** 3 rúmgóð herbergi
** Eignin er öll hin glæsilegasta og hefur verið endurnýjuð að miklu leyti
** Miklar endurbætur á húsi síðustu ár
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 103,8m2, þar af geymsla 5,8m2. Fasteignamat 2027 er 66.750.000kr.
Eignin skiptist í forstofu, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í sameign.
Nánari lýsing
Forstofa er með fataskáp, flísar á gólfi.
Alrými sem opið er í eldhús, stofu og borðstofu, fallegt nýlegt harðparket á gólfum.
Eldhús er með fallegri svartri innréttingu með ofni, plássi fyrir tvöfaldan ísskáp, innfelldum vaski með vönduðum blöndunartækjum, stórri eyju með spaneldavél. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með útgengi út á svalir með fallegu útsýni. Skilrúm klætt hljóðvistarpanel fyrir sjónvarp. Parket á gólfi
Borðstofa er björt og flæðandi úr eldhúsi og stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott og bjart með góðum skápum. Parketi á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III er með skáp, parket á gólfi.
Baðherbergi er með upphengdu salerni, hvítri innréttingu, speglaskáp, svartri handlaug, handklæðaofni og sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Geymsla, 5,8m2, er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla eru í sameign.
Starfandi eru tvö húsfélög, annað þeirra sér um viðgerðir og framkvæmdir á öllu húsinu en það minna sér um stigaganginn, bæði þessi félög er virk og huga vel að eigninni. Fyrir liggur ástandsskýrsla sem gerð var árið 2025 og eru framkvæmdir í gangi á forsendum hennar.
Hvammabraut 12, íbúð 0201 er afar vel skipulögð 4 herbegja íbúð sem hefur verið tekin í gegn á smekklegan og vandaðan hátt. Eignin er í góðu og barnvænu hverfi, stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og verslun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.