Fasteignaleitin
Opið hús:20. okt. kl 16:15-17:15
Skráð 16. okt. 2026

Úthlíð 11

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
42.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.900.000 kr.
Fermetraverð
1.250.591 kr./m2
Fasteignamat
50.500.000 kr.
Brunabótamat
28.600.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1951
3. hæð · efsta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2012950
Landnúmer
103574
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Þrýstijafnari nýlegur. Annað ekki vitað.
Raflagnir
Öryggi í töflu íbúðar endurnýjuð og bætt við öryggjum í eldhúsi. Rafmagnstafla í sameign verið endurnýjuð. Annað ekki vitað.
Frárennslislagnir
Skólp verið endurnýjað og drenað við húsið, ekki vitað hvenær.
Gluggar / Gler
Gluggar málaðir innan og utan 2026. Skipt um glugga í húsinu 2019, en ekki risíbúð. Útihurðar pússaðar og lakkaðar 2026.
Þak
Steypt þakrenna lagfærð og tjörguð 2026. Þak yfirfarið af fagmanni og leki lagaður 2026. Ekki vitað um aldur þaks.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á rishæð í fjórbýli að Úthlíð 11 í hinum sívinsælu Hlíðum í Reykjavík. Gólfflötur íbúðarinnar er mun stærri en fermetrar segja til um og geymslurými er undir súð í íbúð. Frábær staðsetning við Klambratún og miðbæinn sem er með marga veitingastaði, ýmsa þjónustu og verslanir. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla sem og Sundhöll Reykjavíkur. Samþykktar teikningar um kvisti á þaki liggja fyrir.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslur. Þvottahús er í sameign. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 42,3 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af björtum og snyrtilegum dúklögðum stigagangi. Stigagangur er mjög sjarmerandi með því útlit sem var á þeim tíma sem húsið var byggt. Innan íbúðar er parketlagt gólf og tvöfaldur fataskápur sem nær upp í loft. Parket flæðir inn um flest rými íbúðar.
Baðherbergi er flísalagt að mestu. Baðkar, upphengt salerni, hvít innrétting með handlaug og veggfestur speglaskápur með ljósi. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Herbergi I er mjög stórt og með bæði opnanlegum þakglugga til suðurs og öðrum glugga sem vísar út á vestur gafl húss. Innbyggðir eldri fataskápar eru á einum vegg. Parket á gólfi.
Herbergi II er með glugga sem snýr til norðurs. Vel rúmgott herbergi með parketi á gólfi.
Stofa er með gluggum á tvo vegu, bæði þakglugga og öðrum stórum glugga til austurs. Útsýni er yfir að Perlunni í Öskjuhlíð. Parket á gólfi stofu.
Eldhús var endurnýjað að hluta árið 2025. Nýir neðri skápar, borðplata, vaskur og blöndunartæki. Einnig var sett ný eldavél með span helluborði og nýtt parket. Ísskápur getur fylgt. Opnanlegt fag er í glugga.
Geymslur eru í þakrými íbúðar. Einnig er geymslurými í sameign í kjallara.
Þvottahús er í sameign í kjallara. Þaðan er hurð út í garð.
Bílastæði eru úti í götu framan við hús.
Garður er gróinn og snyrtilegur. Hellurlagðar stéttar, grasfletir og fjölærar plöntur. Tröppur eru nýlega múrviðgerðar.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameiginlegum skúr úti á lóð.
Hlutfallstala íbúðar í heildarhúsi og lóð er 11,40%

Framkvæmdir á sameign:
2026: Múrviðgerðir á húsi og tröppum. Steypt þakrenna lagfærð og tjörguð. Þak yfirfarið af fagmanni og leki lagaður. Viðhald á útihurðum (lagfærðar, pússaðar og lakkaðar).
2025: Þrýstijafnari íbúðar endurnýjaður.
2019: Húsið endursteinað.

Brunabótamat íbúðar hækkar í vikunni 19.-23. okt.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/05/202547.750.000 kr.51.200.000 kr.42.3 m21.210.401 kr.Já
15/08/201928.650.000 kr.33.000.000 kr.42.3 m2780.141 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drápuhlíð 24
Skoða eignina Drápuhlíð 24
Drápuhlíð 24
105 Reykjavík
51,9 m2
Fjölbýlishús
413
1195 þ.kr./m2
62.000.000 kr.
Skoða eignina Keilugrandi 4
Skoða eignina Keilugrandi 4
Keilugrandi 4
107 Reykjavík
57,3 m2
Fjölbýlishús
211
1010 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 35
Opið hús:19. okt. kl 17:30-18:15
Skoða eignina Rauðalækur 35
Rauðalækur 35
105 Reykjavík
133,3 m2
Hæð
523
799 þ.kr./m2
106.500.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 35
Opið hús:19. okt. kl 17:30-18:15
raudalaekur-35.jpg
Skoða eignina Rauðalækur 35
Rauðalækur 35
105 Reykjavík
133,3 m2
Hæð
523
799 þ.kr./m2
106.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin