Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg íbúð með frábæru útsýni í vönduðu lyftuhúsi á besta stað í hjarta Garðabæjar. Um er að ræða 4 herbergja íbúð sem er skráð skv fmr 143,1 fm og þar af er sér geymsla í sameign sem er skráð 8fm. Tvennar yfirbyggðar svalir og stæði í lokaðri bílageymslu fylgja eigninni. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi bæði með sturtu, þvottaherbergi og tvö svefnherbergi. Allar innréttingar eru samræmdar og gólfefni eru flísar og harðparket. Húsið er staðsett í miðbæ Garðabæjar þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri svo sem Matvöruverslun, heilsugæsla, veitingastaðir, apotek, hágreiðslustofa, verslanir, bókasafn og fl. Einnig er bæði golfvöllur, sundlaug, grunn og leikskóli í innan við 5 mínútna keyrslu. Frábært útsýni er frá eigninni m.a út á sjó, yfir Bessastaði og Snæfellsjökul svo eitthvað sé nefnt. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með miklum fataskápum sem ná uppí loft, harðparket er á gólfi.
Stofa: Stofan er björt og opin með gluggum frá lofti og niður að gólfi. Útsýnið er einstakt út á sjó, að Snæfellsjökli og yfir Bessastaði.
Borðstofa: samliggjandi stofu er rúmgóð borðstofa sem rúmar vel stórt borð.
Sjónvarpsherbergi: Við hlið stofu er sjónvarpsherbergi með glugga sem mögulegt væri að loka og nota sem herbergi.
Eldhús: eldhúsið er vel útbúið með fallegri innréttingu sem nær uppí loft og er með granít á borði. Stór eyja sem hægt er að sitja við. Stækkað span helluborð með háf yfir, ofninn er í vinnuhæð og tengi er fyrir uppþvottavél. Frá eldhúsi er gengið út á yfirbyggðar grill svalir.
Baðherbergi: aðalbaðherbergi er með fallegri innréttingu með granít á borði, flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, góðri sturtu og handklæðaofni.
Svefnherbergi: herbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum. Hjónasvítan er mjög rúmgóð. Stórir fataskápar og innangengt baðherbergi sem er vel útbúið með innréttingu, góðri sturtu og með opnanlegum glugga.
Þvottaherbergi: innan íbúðar er þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu þar sem vélarnar eru í vinnuhæð, vaski og hilum fyrir ofan vask.
Sameign: í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni og stæði í lokaðri bílageymslu sem er upphituð og búið að rykbinda og mála gólfin.
Byggingaraðili: ÞG Verk ehf. er lóðarhafi og byggingaraðili hússins. Þ.G. Verktakar hafa áralanga reynslu að framkvæmdum fyrir opinbera aðila, stórfyrirtæki og einstaklinga ásamt því að byggja atvinnu- og íbúðarhúsnæði á eigin vegum.
Niðurlag: Þetta er einstaklega vel skipulögð og falleg íbúð með frábæru útsýni í hjarta Garðabæjar þar sem öll þjónusta er í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is