Fasteignasalan TORG og Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali s. 863-8813, kynna bjart og fallega endurnýjað fjögurra herbergja endaraðhús á einni hæð með tvöföldum bílskúr við Garðsstaði 31 í Reykjavík.
Þrjú svefnherbergi, glæsilegt endurnýjað eldhús og baðherbergi, og rúmgott, opið alrými með aukinni lofthæð og gólfhita. Timburverönd með skjólgirðingum og heitum potti er við húsið og fallegt útsýni. Góður garður með fallegum, fullvöxnum trjám
Húsið er skráð samtals 178,4 m² samkvæmt fasteignaskrá, þar af er íbúðarhluti 134,5 m² og bílskúr 43,9 m². Húsið er steinsteypt og byggt árið 1999.
Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, auk tvöfalds bílskúrs með þvottaaðstöðu og salerni.
Nánari lýsing:
Anddyri var endurnýjað árið 2020. Innangengt er úr anddyri í bílskúr.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með stórum gluggum og aukinni lofthæð sem gefur rýminu skemmtilegan svip. Búið er að opna stofuna að eldhúsi. Innfelld lýsing er í lofti og gólfhiti í alrými.
Eldhús var endurnýjað árið 2024 og er með fallegri innréttingu í hlýjum gráum tón, góðu skápa- og skúffuplássi og ljósri Quartz steins borðplötu með marmaraáferð. Ofn er í vinnuhæð, uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur fylgir.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, gott hjónaherbergi og tvö barnaherbergi.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2019 ásamt hreinlætistækjum. Það er flísalagt í gráum tónum og með bæði baðkari og rúmgóðri sturtu með glerþili. Falleg innrétting með dökkri borðplötu og hringlaga spegli fyrir ofan. Innfelld lýsing er í lofti og gólfhiti á baðherbergi.
Bílskúr er rúmgóður, 43,9 m², með tveimur innkeyrsluhurðum með rafdrifnum opnurum. Gólfið er flísalagt og þar er þvottaaðstaða með vinnuborði, skolvaski og skápum, auk salernis. Innangengt er í húsið úr bílskúr.
Útisvæði er með timburverönd og skjólgirðingum. Hellulögð aðkoma og bílastæði eru framan við húsið með snjóbræðslu.
Nýlegar endurbætur skv. seljendum;
• Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar árið 2019 og komið fyrir varmaskiptakerfi.
• Þakkantar að framan og aftan voru endurnýjaðir árið 2023. Þakið var jafnframt málað og skipt um lausa nagla og skrúfur.
• Eldhús var endurnýjað árið 2024.
• Gólfhiti var lagður í alrými og eldhús árið 2024.
Vrikilega fallegt fjölskylduhús með útsýni til Esju. Frábærar gönguleiðir í hverfinu og meðfram sjávarsíðunni. GR Korpúlfsstaðavöllur er jafnframt í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.