Fasteignaleitin
Skráð 29. jan. 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
96 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
46.000.000 kr.
Fermetraverð
479.167 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
999300124
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLAMENCA VILLAGE, EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á COSTA BLANCA" 
"DÁSAMLEGT ÞORP VIÐ MIÐJARÐARHAFIÐ"

Lokað svæði, gróið og fallegt umhverfi, göngustígar, hlaupabrautir, sundlaugar, barnalaugar, líkamsræktraraðstaða, kaffihús/bar og ótal margt fleira sem gerir þetta án efa að flottasta íbúðahverfinu á Costa Blanca svæðinu.


Glænýjar og vandaðar 3ja og 4ra herb. íbúðir á frábærum stað á Playa Flamenca, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín göngufæri á Playa Flamenca ströndina,  10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi. 

4. OG SÍÐASTI ÁFANGINN LOKSINS KOMINN Í SÖLU.
AFHENDAST Í ÁGÚST - NÓVEMBER 2024.

AÐEINS TVÆR ÍBÚÐIR EFTIR Í 3. ÁFANGA TIL AFHENDINGR STRAX, ANNARS ER ALLT SELT.


Upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495.
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.


Nánari lýsing:
Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum íbúðum. Íbúðirnar eru  með tveimur eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði, miðhæðum  með góðum svölum eða á efstu hæð og þá með góðum svölum og stórum einkaþaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu, kaffihúsi/bar ofl.  Góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar.

Stæði í bílakjallara.
Einnig fylgir geymsla í kjallara flestum íbúðunum.


Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í örstuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. La Zenia, Playa Flamenca og La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu, veitingastaðir og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á þessum vinsæla stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.
Íbúðir í 3. áfanga eru til afhendingar STRAX.
Íbúðir í 4. áfanga eru til afhendingar í ágúst  - nóvember 2024.

Mögulegt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi. Þá er allt sett upp og hægt að flytja beint inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

Verð miðað við gengi 1Evra=150 ISK
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi): frá 307.000 Evrum (ISK. 46.000.000) + kostn. við kaupin
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 326.000 Evrum (ISK. 48.900.000) + kostn. við kaupin
4ra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 426.000 Evrum (ISK. 63.900.000) + kostn. við kaupin

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við aðstoðum okkar viðskiptavini við greiðslumatið.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílakjallari, sundlaugargarður, air con, sér garður, þakverönd, nálægt strönd, lyfta, 
Svæði: Costa Blanca, Playa Flamenca,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
999300124

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Arenales ströndin
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Arenales ströndin
Spánn - Costa Blanca
111 m2
Fjölbýlishús
322
430 þ.kr./m2
47.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
100 m2
Raðhús
423
441 þ.kr./m2
44.100.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva
SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva
Spánn - Costa Blanca
106 m2
Einbýlishús
423
423 þ.kr./m2
44.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - El Raso
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - El Raso
Spánn - Costa Blanca
96 m2
Fjölbýlishús
423
457 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache