BERG fasteignasala kynnir:
Íhlutir ehf. Skipholti 7, eru til sölu.
Fyrirtækið er í eigin húsnæði sem er 192 fm. verslunarhúsnæði.
Íhlutir ehf. var stofnað 1992 sem verslun með vörur tengdar raf-og tækniiðnaði.Íhlutir ehf. sem er verslun með íhluti í rafeindabúnað til viðhalds, nýsmíði og kennslu hefur verið starfrækt í húsnæðinu síðan 1997
Starfandi eru tveir starfsmenn. Fyrirtækið er vel þekkt á markaðnum,hefur veitt trausta og góða þjónustu um langa hríð. Reksturinn hefur verið traustur og farsæll. Fyrirtækið á sér góða sögu á markaðnum. Viðskiptavildin er traust og stór hópur tryggra viðskiptavina getur vitnað um það. Nú hyggjast eigendur selja fyrirtækið,reksturinn og húsnæðið.
Verð fasteignarinnar er metið á 85 millj. verð lagers á 68 millj. og viðskiptavildin á kr. 35 millj. eða samtals kr. 188 millj.
Húseignin er veðbandalaus og reksturinn er skuldlaus.
Nánari upplýsingar hjá Berg fasteignasölu í síma 588-5530 eða eftirfarandi starfsmönnum:
Pétur Pétursson löggiltur fasteignasali - sími 897-0047 - netfang: petur@berg.is
Heimasíða Berg fasteignasölu: www.berg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Berg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.400,- m/vsk