Fasteignaleitin
Skráð 8. júní 2026

Vesturbakki 10 - 101 (endabil)

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Suðurland/Þorlákshöfn-815
53.1 m2
1 Herb.
1 Baðherb.
Verð
27.900.000 kr.
Fermetraverð
525.424 kr./m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
25247366
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í sölu: Steypt og vandað atvinnuhúsnæði á frábærum stað í Þorlákshöfn. Húsnæðið samanstendur af 33 stökum einingum að grunnfleti 41-69 fm auk möguleika á millilofti.  Öll rými skilast fullbúin með snyrtingu, hægt að koma fyrir sturtu og eldhúskrók. Gólfhiti í rýmum. Lóð skilast frágengin með malbikuðu bílaplani.  Afhending vor 2026.

Húsnæðið hentar vel undir fjölbreytta starfsemi og þjónustu og er kjörið fyrir verktaka, sem geymsluhúsnæði eða dótakassi svo eitthvað sé nefnt. Á efri hæðum eru mjög flott rými með ótal möguleika varðandi nýtingu, þar eru fínir gluggar og hægt að setja upp gott milliloft.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 / atli@betristofan.is og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 / dagrun@betristofan.is


Nánari lýsing - um er að ræða Vesturbakka 10 bil 101.
Skráð stærð 53,1 fm að grunnfleti - möguleiki á stóru millilofti.
Rýmið skilast fullbúið.
Innkeyrsluhurð 3,5m á hæð. 
Rýmið skilast með snyrtingu og sturtu.
Öll rými með sér rafmagnsinntaki. 

Skipting eignarhluta:
11 iðnaðarbil (merkt 101-111) extra há innkeyrsluhurð (3,5m) með möguleika á stóru millilofti. 
11 iðnaðarbil (merkt 112-122) stærri rými en með milli lofthæð, innkeyrsluhurð 2,5m.
11 skrifstofur (merkt 201-211) eru á 2 hæð með ótal möguleika, hægt að setja upp milliloft.

Úr byggingarlýsingu:
Húsið er úr forsteyptum samlokueiningum frá BM Vallá, á steyptum sökkli. 
Þak er yleiningar og sperruþak á 2. hæð. Gluggar og hurðir eru Al/tré.
1. hæð verður máluð í hvítum lit, 2. hæð einangruð og klædd með álklæðningu. 
Gólfhiti í öllum rýmum á efri 2. hæð, gólf frágengin með niðurföllum og góðum vatnshalla. 

Þetta er vandað hús á góðum stað í Þorlákshöfn - áhugaverðar stærðir með mikla nýtingarmöguleika.
Allar nánari upplýsingar veita: Atli S, Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178, tölvupóstur atli@betristofan.is og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 866 1763, tölvupóstur dagrun@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Betri Stofan Fasteignasala
https://www.betristofan.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bæjarhraun 6
Til leigu
Skoða eignina Bæjarhraun 6
Bæjarhraun 6
220 Hafnarfjörður
150 m2
Atvinnuhúsn.
8
Fasteignamat 86.900.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Ennisbraut 5
Skoða eignina Ennisbraut 5
Ennisbraut 5
540 Blönduós
75.9 m2
Atvinnuhúsn.
1
316 þ.kr./m2
24.000.000 kr.
Skoða eignina Desjamýri 13
Skoða eignina Desjamýri 13
Desjamýri 13
270 Mosfellsbær
291.1 m2
Atvinnuhúsn.
395 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Bugðufljót 6
Til leigu
Skoða eignina Bugðufljót 6
Bugðufljót 6
270 Mosfellsbær
63.7 m2
Atvinnuhúsn.
1
Fasteignamat 18.700.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin