Fasteignaleitin
Skráð 14. ágúst 2026

Skúlagata 32-34

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
83.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
894.863 kr./m2
Brunabótamat
49.600.000 kr.
Byggt 1959
4. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22416642
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

EINSTÖK EIGN - ÚTSÝNISÍBÚÐ Á 4. HÆÐ MEÐ SVÖLUM Í LYFTUHÚSI Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ - 101 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 83,7 fm.

Um er að ræða rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í steinsteyptu lyftuhúsnæði byggðu árið 1959 sem var mikið endurnýjað um árið 2000.
Góð lofthæð er í íbúðinni, em íbúðin sjálf er skráð 75,2 fm. og sér geymsla íbúðarinnar 8.5 fm.
Komið er inn í forstofu og gott hol sem nýtt er nú sem vinnu- og tölvuhol, til vinstri við innganginn er þvottahúsið og baðherbergið beint á móti inngangi. Stofan og eldhúsið sem er opið í stofuna eru til hægri við inngang og er rúmgott svefnherbergið þar inn af. Gengið er út á góðar svalir úr stofunni með fallegu útsýni út á flóann. 

Forstofa/hol: Fataskápur og flísar á gólfi, rúmgott fyrir vinnuaðstöðu.
Stofa: Stofan er björt og opin í eldhúsið, flísar á gólfum og útgengt út á svalir með fallegu útsýni yfir innsiglingu skipa.
Eldhús: Rúmgott með fallegri hvítir innréttingu með góðu skápaplássi, keramik helluborð, gufugleypir og flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturta, upphent salerni og innrétting við handlaug, handklæðaofn.
Þvottahús: Innan íbúðar, gott skápapláss og vegghillur, flísar á gólfi.
Geymsla: Skráð 8,5 fm. á jarðhæð með  hillum og internettengi.
Sameign: Stigahús og sameignin er snyrtileg, flísar eru í anddyri og lyftan nýleg.
Lóðin: Frágengin og snyrtileg, sameiginlegur garður/lóð og afgirt lokað bílastæðasvæði á lóðinni bak við húsið.

Að sögn eigenda er húsið í góðu ástandi; klætt með áli með innbrenndum hvítum lit. Norður og suðurhliðar efstu hæðar eru klæddar með harðviði, þakkantur er klæddur með áli og harðviði með innfelldri lýsingu. Þak á að vera í góðu ástandi.

- Íbúðin er öll afar rúmgóð og nýtist vel.
- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Nýlegur myndadyrasími.
- Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign á jarðhæð.

ATH! Snyrtilegt umhverfi, stutt er í verslun, veitingastaði og menningarsvæði, ásamt því að stutt er í miðbæ Reykjavíkur.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Haukahlíð 1
Bílastæði
Skoða eignina Haukahlíð 1
Haukahlíð 1
102 Reykjavík
74,9 m2
Fjölbýlishús
312
1040 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparstígur 7
Opið hús:14. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Klapparstígur 7
Klapparstígur 7
101 Reykjavík
78,8 m2
Fjölbýlishús
312
951 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Smyrilshlíð 15
102 Reykjavík
89,1 m2
Fjölbýlishús
211
915 þ.kr./m2
81.500.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 72
Opið hús:18. okt. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Njálsgata 72
Njálsgata 72
101 Reykjavík
70,8 m2
Fjölbýlishús
312
917 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin