Fasteignaleitin
Opið hús:28. nóv. kl 13:00-13:30
Skráð 24. nóv. 2026

Víðidalur 62

RaðhúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
116.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
719.554 kr./m2
Fasteignamat
79.200.000 kr.
Brunabótamat
67.850.000 kr.
Mynd af Páll Þorbjörnsson
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2020
Garður
Pallur
Heitur pottur
Sturtuklefi
Á einni hæð
Fasteignanúmer
2332349
Landnúmer
210494
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt 2020
Raflagnir
Upprunalegt 2020
Frárennslislagnir
Upprunalegt 2020
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upprunalegt 2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sólpallur
Upphitun
Hitaveita
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Víðidalur 62, 260 Reykjanesbær er fallegt og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð í nýlegu og barnvænu hverfi í Innri Njarðvík. Húsið var byggt árið 2020. Í því eru þrjú svefnherbergi, eitt þeirra hjónaherbergi með fataherbergi. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu rými og útgengt er þaðan á timburpall og í afgirtan garð. Eignin stendur á enda lengjunnar og liggur að opnu grænu svæði. Fyrir framan hana eru tvö hellulögð bílastæði.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, rúmgóður tvöfaldur fataskápur og gluggi. 
Gangur: Parketflísar á gólfi og innfelld lýsing í lofti. Frá ganginum er gengið inn í herbergi, baðherbergi og alrými.
Eldhús: Vönduð U-laga innrétting frá GKS með dökkum viðaráferðarframhliðum, ljósri borðplötu og hvítum flísum milli efri og neðri skápa. Undir efri skápum er lýsing. Í eldhúsinu eru bakaraofn frá Siemens í vinnuhæð, spanhelluborð, háfur frá Siemens og innbyggður ísskápur. Eldhúsið er opið að borðstofu og stofu og þar er gluggi með útsýni út á opið svæði.
Borðstofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum. Pláss er fyrir stórt borðstofuborð.
Stofa: Björt og rúmgóð með ljósu parketi og innfelldri lýsingu. Einn veggur er klæddur viðarrimlum (panel) og setur svip á rýmið. Útgengt er á timburpall og í garð.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketflísum og glugga út í garð. Inn af því er fataherbergi með opnum hillum, slá og skúffum.
Barnaherbergi I: Parketflísar á gólfi og hár, dökkur fataskápur.
Barnaherbergi II: Herbergið er á horni hússins með gluggum á tvo vegu. Parketflísum á gólfi og dökkur fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með stórum ljósum flísum. Þar er sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni, dökk innrétting með handlaug og speglaskáp og svartur handklæðaofn. Þvottaaðstaðan er í innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð, með skápum fyrir ofan og neðan.
Garður og lóð: Timburpallur er meðfram húsinu og sléttur grasflötur í afgirtum garði með skjólveggjum. Í garðinum er nýtt garðhús og heitur pottur með timburklæðningu og þrepum. Fyrir framan húsið eru tvö hellulögð bílastæði og sorptunnuskýli. 

Staðsetning: Staðsetning: Eignin er staðsett í nýlegu og fjölskylduvænu íbúðahverfi í Reykjanesbæ. Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Bókasafn og sundlaug eru í göngufæri Eignin stendur á enda raðhúsalengjunnar, við opið svæði, sem tryggir góða birtu og aukið næði.

Nánari upplýsingar veitir/veita:
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 772-0102, tölvupóstur asgeir@allt.is
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/05/202144.700.000 kr.49.800.000 kr.116.6 m2427.101 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 52
Hleðslustöð
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
103,8 m2
Fjölbýlishús
514
843 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Grímsholt 12
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:30. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grímsholt 12
Grímsholt 12
250 Garður
166,8 m2
Raðhús
413
479 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 301
Lautargata 5 íb. 301
210 Garðabær
129,3 m2
Fjölbýlishús
413
955 þ.kr./m2
123.500.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 1
Á einni hæð
Skoða eignina Lautargata 1
Lautargata 1
210 Garðabær
137,7 m2
Fjölbýlishús
413
936 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin