Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með fallegu útsýni og tvennum svölum til suðvesturs og austurs. Íbúðin er við Bakkabraut 13A, merkt 0505, á 5. hæð (efstu). Eignin er staðsett við sjávarsíðuna á Kársnesi, í næsta nágrenni við smábátahöfnina. Íbúðin er björt og vel skipulögð, með stórum gluggum, aukinni lofthæð, tveimur svefnherbergjum, þar af hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, auk annars baðherbergis, rúmgóðu alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpskrók og eldhúsi, sérþvottahúsi og forstofu. Eignin er samtals 132,5 m², þar af er íbúðin 123,5 m² og sérgeymsla í kjallara 9,0 m². Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara, merkt B30. Íbúðin er eingöngu sýnd í einkasýningum. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is Nánari lýsing íbúðar 505: Gengið er inn í forstofu og þaðan inn í bjart og opið alrými með aukinni lofthæð, þar sem rúmgóð stofa, borðstofa, sjónvarpskrókur og eldhús með eyju mynda fallega heild. Eldhúsið er með góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið og bjóða upp á fallegt útsýni. Frá alrýminu er útgengt á 9,3 m² suðvestursvalir.
Svefnherbergin eru tvö, þar af rúmgóð hjónasvíta með innangengu fataherbergi, sérbaðherbergi og útgengi á 7,0 m² austursvalir. Hitt svefnherbergið er einnig rúmgott. Auk þess er annað baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar.
Afhending íbúðar 505: Íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og miðast ásett verð við þau skil, sjá nánar skilalýsingu seljanda. Einnig er hægt að fá íbúðina fullbúna án gólfefna, samkvæmt skilalýsingu. Ásett verð miðað við fullbúna íbúð er 200.000.000 kr. Hægt er að velja á milli tveggja hönnunarþema, Steins eða Yls.
Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is Sjá nánari upplýsingar um verkefnið á sölusíðu Vesturbakka.Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.
Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts. Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.
Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptakerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.
Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar. Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.