Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs, 780-2700 kynna :
Mjög vel staðsett 149,1fm fimm herbergja raðhús ásamt 24,8fm bílskúr, samtals : 173,9fm. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi þvottahús og geymslu. Fallegur garður sem snýr í suður. Mjög fallegt útsýni frá svölum út frá stofu til suðurs. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
NÁNARI LÝSING :
Miðhæð :
Forstofa : með fatahengi og flísum á gólfi. Hol : með innbyggðum skápum, parket á gólfi. Eldhús : með snyrtilegri innréttingu, flísar á milli skápa, uppþvottavél og ísskápur fylgja með, parket á gólfi. Stofa / Borðstofa : með parketi á gólfi, útgengt út á suður svalir með mjög fallegu útsýni. Gestasnyrting : með góðri innréttingu, flísar á gólfi og veggjum, gluggi er á baði.
Neðri hæð :
Hol : með parketi á gólfi. Hjónaherbergi : með skápum, parket á gólfi. Tvö góð svefnherbergi : með skápum, parket á gólfi. Baðherbergi : með baðkari með sturtuaðstöðu, innrétting við vask, flísar á gólfi og veggjum. Þvottahús : með snyrtilegri hvítri innréttingu, flísar á gólfi, útgengt út í fallegann garð. Geymsla : undir stiga.
Ris :
Stórt parketlagt rými með súðargeymslum og þakgluggum. Upplagt sem svefnherbergi.
Bílskúr : með sjálfvirkum hurðaropnana, rafmagni og hita.
* 2025 Þök endurnýjuð á allri raðhúsalengjunni og settir nýir þakglugga. 2026. Allt húsið nýmálað að innan ásamt gluggum. Svalagólf flotað upp á nýtt. Verið er að klára að mála bílskúra að utan og greiðist það af seljanda.
Gnitaheiðin er í fallegu og grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla sem og fjölbreytta verslun og þjónustu. Stutt er til allra átta og samgönguleiðir mjög góðar, fyrir gangandi, akandi sem og hjólandi. Einnig er stutt í ýmiss konar afþreyingu og fjölmargar leiðir til útivistar.