LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu mjög vel skipulagða fimm herbergja endaíbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýli. Sérinngangur og afgirtur sérafnotaréttur, hellulögð verönd. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eignin er laus til afhendingar fljótlega.
Íbúðin skiptist í opna forstofu og hol, eldhús, stofu og borðstofu, FJÖGUR svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél en henni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu, sér geymsla og gott stæði í lokaðri bílageymslu. Snyrtileg sameign, lóð falleg og frágengin með leiktækjum.
Birt stærð séreignar er 117 fm samkvæmt HMS en þar af er 7,8 fm geymsla í kjallara.
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit - allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, lögg. fast. í síma 663-2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Hol, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í opnu rými, parket á gólfi og útgengt á stóra afgirta og hellulagða verönd, stór geymsluskápur á verönd.
Eldhús, vönduð hvít innrétting og parket á gólfi, uppþvottavél fylgir.
Hjónaherbergi, rúmgott og bjart með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi I, með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi II, með góðum fataskápum, parket á gólfi (léttur veggur á milli BI og BII).
Barnaherbergi III, með góðum fataskápum, parket á gólfi (léttur veggur á milli BI og BII).
Baðherbergi mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með gólfhita. Vönduð innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtustöng en á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla í sameign og sameiginleg hjólageymsla.
Stæði í bílageymslu, vel staðsett.
Húsgjöld eignar eru nú kr 35.343 á mánuði en þá er allur almennur rekstur húsfélagsins innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, þrif á sameign, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.
Allar frekar upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is