Falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð með bílskúr á eftirsóttum stað í HafnarfirðiGlæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð við Álfaskeið 90 í Hafnarfirði, ásamt sérgeymslu og rúmgóðum bílskúr.
Eignin er samtals 134,6 fm, þar af er íbúðin 105,6 fm, geymsla 5,3 fm og bílskúr 23,7 fm.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxÍbúðin hefur verið endurnýjuð á fallegan og vandaðan hátt á síðustu árum.
Árið 2025 var bæði eldhús og baðherbergi endurnýjað ásamt innihurðum.
Eignin býður upp á bjart og rúmgott alrými, þrjú svefnherbergi, góðar suðursvalir og sérbílskúr með hita og rafmagni.
Nánari lýsing:Komið er inn í rúmgóða, flísalagða
forstofu með opnu fatahengi og góðum fataskápum innar á ganginum.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu alrými með útgengi á góðar suðursvalir sem snúa vel gagnvart sólu.
Eldhúsið er fallegt og nýlega endurnýjað, með vandaðri innréttingu og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Notalegur
borðkrókur er við enda eldhússins með góðum glugga og
búr er inn af eldhúsinu.
Á herbergjagangi eru
þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og tvö barnaherbergi eru einnig með parketi, annað þeirra með fataskáp.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað árið 2025 og er með fallegri vaskinnréttingu, sturtu og handklæðaofni.
Flísar eru á gólfi og veggjum og opnanlegur gluggi veitir góða loftræstingu.
Í kjallara er
sérgeymsla með hillum, sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús með góðri þurrkaðstöðu.
Bílskúr:
Bílskúrinn er 23,7 fm að stærð og er með rafmagni, hita, gönguhurð og rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð.
Bílskúrinn er hluti af bílskúralengju sem hefur verið endurbætt verulega á síðustu árum.
Helstu endurbætur innan íbúðar samkvæmt seljanda:2025 – Eldhús endurnýjað.
2025 – Baðherbergi endurnýjað.
2025 – Innihurðar endurnýjaðar.
Framkvæmdir á sameign og ytra byrði samkvæmt seljanda:2026 – Ný útilýsing sett upp við bílskúra.
2024 – Nýtt rafmagnsinntak tekið inn í bílskúra og lagt fyrir hleðslustöðvum.
2024 – Bílskúrar háþrýstiþvegnir, laus múr fjarlægður og múrað upp á nýtt. Tjörupappi lagður á alla skúralengjuna.
2023 – Sprungur í bílskúrum lagfærðar, múrað og þakpappi settur á. Bílskúrarnir málaðir.
2022 – Ytra byrði hússins sprunguviðgert og málað.
2022 – Gluggar, gler, opnanleg fög og svalahurðir endurnýjuð og/eða lagfærð eftir þörfum.
2022 – Timbur í girðingu endurnýjað.
Flasningar hafa verið settar á kantinn á bílskúrunum sem snýr að bílastæðum. Á bakhlið bílskúranna eru gluggar sem búið er að loka.
Stofnlagnir fyrir heitt og kalt vatn hafa verið lagðar að bílskúrunum. Þá hefur þriggja fasa rafmagn verið tekið inn í bílskúralengjuna fyrir bílahleðslu á einum stað, en eftir er að leggja rafmagnstaug milli einstakra skúra.
Fyrir um 15 árum var skipt um þak á húsinu og plata undir þaki einangruð með steinull.
Hér er um að ræða góða eign fyrir þá sem leita að vel skipulagðri fjölskylduíbúð með þremur svefnherbergjum, nýlegu eldhúsi og baðherbergi, góðum suðursvölum, sérgeymslu og bílskúr.
Mikið endurnýjuð eign á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslun og veitingastaði sem Hafnarfjörður býður uppá.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is og Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is