SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*ENDURSALA - FRÁBÆRT VERÐ* - *GLÆSILEG ÍBÚÐ Á FLOTTUM GOLFVELLI*
Glæsileg og vel hönnuð nýleg 4ra herb. íbúð með góðu útsýni til suðurs, á Las Colinas, sem hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er auk þess talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi. Góð stofa, opið eldhús með flottri innréttingu. Stórar svalir út frá stofu.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is.Stórar svalir (22 fm) til suðurs út frá stofu. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður. Bílastæði og geymsla í lokuðum bílakjallara. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Á svæðinu er einnig glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, frábærum nýjum veitingastað (IL Palco) og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. Matvöruverslun á svæðinu.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Sólskyggni yfir svölum.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.
Mjög hagstætt verð: 395.000 evrur + kostn. (ISK 55.300.000 + kostn. gengi 1Evra=140 ISK.)
Hægt er að kaupa húsgögn og húsbúnað með fyrir 15.000 Evrur, þannig að hægt er að flytja beint inn.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum..
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: útsýni, svalir, sundlaugargarður, lyfta, bílakjallari, geymsla, air con, golf, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,