Fasteignaleitin
Skráð 21. mars 2024
Deila eign
Deila

Bugðufljót 9

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
204.3 m2
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
386.197 kr./m2
Fasteignamat
68.850.000 kr.
Brunabótamat
76.350.000 kr.
Mynd af Vilhelm Patrick Bernhöft
Vilhelm Patrick Bernhöft
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2020
Garður
Fasteignanúmer
2330956
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Byggingarstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Matsstig
8 - Í notkun
RE/MAX og Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:
BUGÐUFLJÓT 9 – LAGER- OG IÐNAÐARBIL


EIGN 010204.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 204,3 fm nánar tiltekið eign merkt 010204, fastanúmer 233-0956 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

SMELLTU HÉR og fáðu SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS

Nánari lýsing:
Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum. Einangrað að utan. Álklætt. Það er byggt árið 2020.
Bilið sem um ræðir er á efri hæð hússins (merkt með rauðu á mynd).
Lofthæð bilsins er 7 m við útveggi og 9 m í mæni. Innkeyrsluhurðin er 3,95 m á hæð og 3,9 m á breidd.
Sérafnotareitur fylgir bilinu og afmarkast hann af breidd bilsins og nær 10 m fram. 
-----------------------------------------
Eftirfarandi er tekið úr skilalýsingu byggingaraðila sem núverandi seljandi keypti af:
Byggingaraðili:  Karína ehf.   
Skilalýsing: 
Húsið er einangrað og klætt með áli og fullklárað með útiljósum og handriðum á efri hæð norður gafls. 
Þakið er yleiningar frá Límtré, fullfrágengið að utan og einangrað. 
Bílaplön verða frágengin. Plan að neðanverðu nær 40 metra út og að ofanverðu 25 metra út. 
Niðurföll og sameiginleg olíuskilja. 
Sameiginlegt inntaksrými verður fullklárað ásamt inntökum. 
Neysluvatnsinntök verða komin en ekki lögð. 
Frárennslislagnir eru PVC-U eða sambærilegt og verða í gólfi jarðhæðar, á eftir að leggja að rýmum. 
Niðurföll eru í gólfi. 
Milliveggir verða settir upp til að afmarka bilin. 
Veggir og loft verða ómeðhöndluð
Gólf eru vélslípuð. 
Rafmagnstafla verður komin upp, ásamt mæli, höfuðöryggi og tenglum sem tengja vinnuljós og innkeyrsluhurðir. 
Utanáliggjandi lagnir í stokk að stórum hluta. 
3ja fasa rafmagni í hverju bili. 
Möguleiki á allt að 63A tengli en hver heimtaug er 200A sem skiptist á 8 bil. 
Útiljós eru komin upp og tengd í töflu með sólúri. 
Smáspennutafla með ídráttarröri fyrir ljósleiðara úr inntaksrými. 
Lagt er að og tengt fyrir innkeyrsluhurðir. 
Innkeyrsluhurðir uppsettar upp ásamt mótorum og rofum.  
Gólfhita á jarðhæð og ofnakerfi á efri hæð eða blásarar eftir því sem hentar. 
Lagnir eru utanáliggjandi.  
-----------------------------------------

Áhvílandi er á eigninni vsk kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina. 
Húsið er skáð á byggingarstigi 5 og matstigi 8 og afhendist þannig. 
Mögulegt er að kaupa rekkakerfið og lyftara sem eru í bilinu með í kaupunum.

Nánari upplýsingar veitir Vilhelm Patrick Bernhöft Löggiltur fasteignasali, í síma 6639000, tölvupóstur vilhelm@remax.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache