Guðrún Antonsdóttir fasteignasali kynnir mjög bjarta og stór 3ja herbergja íbúð á 3.hæð ( efsta hæð) með sér inngangi frá svölum.
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu við hlið íbúðar.
Nánari lýsing: Forstofa með opnu fatahengi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu sem er vel með farin með efri og neðri skápum, bakaraofn og eldavél og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofan er mjög björt og rúmgóð. Gengið er út á svalir frá stofu sem snúa í suður.
Svefnherbergin er tvö með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergið er með fjórum skápaeiningum undir handlaug, baðkar, salerni, opnanlegum gluggai og flísum á gólfi og veggjum að mestu. Aðstaða er fyrir þvottavél inn á baðherbergi.
Sérgeymsla er við hlið íbúðar, alls 6,3fm
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg á jarðhæð.
Húsgjöld eignarinnar eru kr á mánuði , innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, hiti á íbúð, rafmagn í sameign, húseigandatrygging og þrif sameignar.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma
621-2020 eða á
gudrun@fastlind.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.