Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 2ja herbergja 70fm endaíbúð á 2.hæð í tveggja hæða fjölbýli.*Björt og skemmtileg íbúð með miklu útsýni og svalir í suður.
Forstofa er flísalögð
þar er góður skápur.
Þvottahús er innaf forstofu, þar eru flísar á gólfi og innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum, þar er góð hvít innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er góð hvít innrétting ásamt tækjum, ofn, helluborð og vifta.
Stofa er parketlögð og hurð er út á suðursvalir frá stofu. Eldhús og stofa liggja saman í opnu rými.
Svefnherbergi er parketlagt og þar er góður skápur.
*Eignin var reist árið 2008 en kláruð 2016.
*Möguleiki á að breyta þvottahúsi í herbergi.
*Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
*Merkt bílastæði fylgir eigninni.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs.
s. 863-4495 / 420-4000
dori@studlaberg.is