**Opið hús: Grandavegur 42, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 103. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. nóvember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.**
CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu vel skipulagða 3ja herbergja íbúð með stórum yfirbyggðum tvennum svölum við Grandaveg 42A í Vesturbænum. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu, búið er að tengja fyrir rafhleðslu við bílastæðið. Eignin er skráð skv. Fasteignaskrá 128,7 fm, þar af er geymsla 7,4 fm. Yfirbyggðar svalir íbúðarinnar mælast 25,7 fm og 12,4 fm og eru þar afleiðandi mjög mikil viðbót við íbúðina og eru ekki inní skráðum fermetrum. Afar falleg og vönduð eign á frábærum stað í Vesturbænum. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - Grandinn og miðborgin í göngufæri. Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Evu Margréti Ásmundsdóttur, lfs. í síma 822 8196 eða á netfangið eva@croisette.is, og Styrmir Bjartur Karlsson, lfs. í síma 899 9090, styrmir@croisette.is
***EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING***SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í ÞRÍVÍDD
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLITLýsing eignar: Forstofa: Flísar á gólfi frá EBSON og fataskápar.
Eldhús: Hvít og brún HTH innrétting, stór eldunareyja sem unnt er að sitja við, quartz borðplötur, mjög gott skápa og vinnupláss. Við eldhús/borðstofu er útgengt á stórar yfirbyggðar svalir sem snúa í norðvestur og njóta glæsilegs útsýnis útá sjóinn til vesturs í átt að Seltjarnarnesi og norðurs að Esjunni.
Setustofa/borðstofa: Opin við eldhús, mjög rúmgóð og björt með glæsilegu útsýni, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, HTH viðarinnrétting undir tvöföldum vaski, quartz borðplata, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagður walk-in sturtuklefi með glerhlið. Þvottaraðstaða er inn af baðherbergi með plássi fyrir þvottavél og þurrkara,
Hjónasvíta: Rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataherbergi með veglegum HTH fataskápum, harðparket á gólfi. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, HTH viðarinnrétting undir vaski, quartz borðplata, handklæðaofn, upphengt salerni, flísalagður gler sturtuklefi.
Barnaherbergi: Gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Íbúðinni fylgir 7,4 fm sérgeymsla í kjallara hússins. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara fylgir einnig. Sameiginleg hjólageymsla fyrir húsið er á jarðhæð sjávarmegin.Nánari upplýsingar veita: Eva Margrét Ásmundsdóttir, Lfs í S: 822 8196 eða eva@croisette.is
Styrmir B. Karlsson, Lfs S:899 9090, styrmir@croistte.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.