Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2026

Birkihæð 12

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
188.5 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
148.400.000 kr.
Brunabótamat
106.650.000 kr.
Byggt 1992
Garður
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2069316
Landnúmer
118079
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Algjörlega endurnýjað og stórglæsilegt 188,5 fermetra endaraðhús á einni hæð á eftirsóttum útsýnisstað við Birkihæð í Garðabæ. Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson , í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.
Fallegt útsýni er frá stofum út á sjóinn, að Bessastöðum og víðar.  Mjög mikil lofthæð er í húsinu og nýr hljóðdúkur í öllum loftum. 

Árið 2024 var húsið allt innréttað upp á nýtt á afar vandaðan og smekklegan máta og notast við vönduðustu fáanleg byggingarefni.  Þá var skipulagi hússins breytt, lagt gólfhitakerfi í allt húsið, nýjar raflagnir og töflur, ný inntaksgrind sett upp, nýr stór forhitari, ný gólfefni, nýjar innréttingar, ný vönduð innbyggð  tæki í baðherbergi og ný tæki í eldhús. Bitar í loftum hússins voru hækkaðir og settur hljóðdúkur í loft, byggð ný verönd með skjólveggjum og heitum potti og fleira.  Öll lýsing í húsinu er hönnuð af Lumex og öll ljós og rofar eru af vandaðri gerð. Loftræstikerfi er í húsinu og er það allt yfirfarið og endurnýjað. 


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og björt með föstum skenk með graníti á borði.
Fataherbergi, um rennihurð með speglum úr holi, flísalagt og rúmgott með sérsmíðuðum innréttingum.
Baðherbergi I, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., handklæðaofn, innrétting með graníti á borðum og innbyggðum vask úr graníti, fastur spegill með lýsingu í, skápur og flísalögð sturta með innbyggðri hillu í vegg með lýsingu í og sturtugleri.  Mjög vönduð tæki eru í baðherbergi. Hol, parket- og flísalagt. 
Eldhús, opið við stofur og hol, parketlagt, bjart og rúmgott. Virkilega fallegar og vandaðar Kvik innréttingar og eyja í eldhúsi með graníti á borðum, veggjum og á göflum á eyju. Stór búrskápur, spanhelluborð í eyju, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur með frysti, kvörn í vaski og tveir Miele ofnar. Fastur skenkur á vegg við eldhús er með graníti á borði og innbyggðum vínkæli.
Samliggjandi mjög stórar og bjartar stofur, parketlagðar og með mjög fallegum ethanol arni úr graníti, mjög langri arinhillu / bekk, úr graníti og sérsmíðuðum hillum. Fallegur setkrókur við útbyggða glugga í hluta stofa og tvær nýjar rennihurðir út á afgirta og skjólsæla baklóð með viðarverönd og nýjum heitum potti. 
Herbergi I, um rennihurð frá stofum, er parketlagt og rúmgott með gólfsíðum gluggum. 
Gangur, parketlagður og með innbyggðum miklum fataskápum á tveimur veggjum.  Skápar eru með rennihurðum með speglum á. 
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með útgengi á afgirta og skjólsæla viðarverönd til suðurs.  Veggur í svefnherbergi er klæddur með viði og graníti. Baðherbergi II, innaf hjónaherbergi.  Flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., tveir handklæðaofnar, innrétting með graníti á borði og á vegg, tveir innbyggðir vaskar úr graníti í innréttingu, stór fastur spegill með lýsingu í og veggskápar. Stór flísalögð sturta með innbggðri hillu með lýsingu í og sturtugleri. Mjög vönduðu tæki eru í baðherbergi.

Bílskúr, sem innangengt er í úr forstofu, er tvöfaldur og með tveimur nýjum innkeyrsluhurðum og nýjum mótorum.  Gólf er flísalagt, miklir skápar á tveimur veggjum, innrétting með vinnuborði og vaski, öflug háþrýstidæla með slöngu á kefli og garðslanga á kefli. 
Þvottaherbergi, innaf bílskúr, flísalagt gólf, innrétting með innbyggðu straubretti, vinnuborði og vaski.  Miklar hillur eru í þvottaherbergi.

Húsið að utan er í góðu ástandi. Þakpappi er nýr og skipt hefur verið um rennihurðir á suðurhlið hússins auk glers og glugga á suðurhlið að mestu. Lóðin er virkilega falleg með stórri hellulagðri innkeyrslu á framlóð sem er nýendurgerð, snjóbræðsla yfirfarin og sett ný stýring á hana. Hellulögð stétt með hitalögn undir og fallegur trjágróður.
Á baklóð er stór og skjólsæl afgirt viðarverönd með heitum potti. Frá verönd er fallegt útsýni að Bessastöðum, Reykjanesi og út á sjóinn. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og grónum stað í Hæðarhverfinu í Garðabæ.

Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson , í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/10/2023120.800.000 kr.156.000.000 kr.188.5 m2827.586 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólagerði 64
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Skólagerði 64
Skólagerði 64
200 Kópavogur
189.8 m2
Parhús
413
684 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Stigahlíð 48
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Stigahlíð 48
Stigahlíð 48
105 Reykjavík
194.6 m2
Hæð
615
Fasteignamat 131.300.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Bílskúr
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Tómasarhagi 17
107 Reykjavík
197.6 m2
Fjölbýlishús
625
860 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
Efsta hæð
Opið hús:18. ágúst kl 17:00-18:00
302 forsíða.jpg
Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
Vorbraut 1 (302)
210 Garðabær
136.3 m2
Fjölbýlishús
322
1100 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin