Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is -
kynnir til sölu - Hrunastígur 1 Þingeyri - Mikið endurnýjað og fallegt einbýlishús með frábæru útsýni yfir Dýrafjörðinn!
Nýlega endurnýjuð tveggja herbergja íbúð á neðri hæð er góð til útleigu. Ath. húsið getur verið laust til afhendingar strax við kaupsamning!
Á efri hæð er sérinngangur, forstofa, opið eldhús og borðstofa, stofa með svölum, þvottaherbergi, baðherbergi og þrjú ágæt svefnherbergi. Á neðri hæð er sérinngangur, forstofa, baðherbergi, stofa, eldhús og svefnherbergi.Nánari lýsing.
Efri hæð:Forstofa með flísum á gólfi.
Opið
eldhús með innréttingu frá HTH, spanhelluborð, ofn og uppþvottavél fylgir. Við
borðstofu er stór útsýnisgluggi með glæsilegu útsýni yfir fjörðinn.
Rúmgóð
stofa með útgengi út á stórar
svalir sem liggja á norður og austurhlið, möguleiki á að gera stiga niður í garð að austanverðu.
Svefnálmugangur, ágætt
þvottaherbergi með flísum á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting frá HTH og góð "walk-in" sturta.
Rúmgott
hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Tvö minni
svefnherbergi, annað þeirra með nýjum fataskáp.
Nýlegt harðparket á gólfum, flísar á forstofu, baði og þvottaherbergi.
Neðri hæð:Sér íbúð á neðri hæð er nýlega endurnýjuð.
Sérinngangur, forstofa með flísum á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, góður sturtuklefi, innrétting og upphengt salerni.,
Björt og rúmgóð
stofa með parketi á gólfi.
Eldhús með lítiili innréttingu með eldavél ágætur borðkrókur.
Stórt
svefnherbergi með parketi á gólfi.
Framkvæmdasaga seljenda frá 2020.Þakkantur endurnýjaður.
Ný eldhúsinnrétting og tæki. Ný gólfefni, harðparket og flísar.
Sagað fyrir stærri glugga í eldhús og nýr stór gluggi settur þar.
Nýr gluggi og svalahurð að norðanverðu. Nýtt gler og listar í aðra glugga.
Baðherbergi endurnýjað.
Hiti í gólfi í eldhús, stofu og forstofu, einnig baðherbergi.
Ný klæðning í loft.
Nýtt vatnsinntak og nýjar vatnslagnir fyrir neysluvatn.
Húsið heilmálað að utanverðu.
Neðri hæð endurnýjuð 2024
Þakjárn hefur verið yfirfarið en er gamalt.