Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Bjartahlíð 35

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
152 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
118.900.000 kr.
Fermetraverð
782.237 kr./m2
Fasteignamat
96.300.000 kr.
Brunabótamat
79.350.000 kr.
Mynd af Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1992
Þvottahús
Geymsla 7.4m2
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2083091
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
skipt um alla glugga nema í forstofu og herb., næst henni árið 2024
Þak
gamalt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
* Garðskáli sem merktur er 01-0103 og er skráður 19 m2 er ranglega skráður inn í heildarfermetrafjölda eignarinnar skv., FMR yfirliti frá HMS(eignin er því 19 m2 minni). Sækja þyrfti aftur um byggingarleyfi fyrir garðskála hjá byggingarfulltrúa Mosfellsbæjar. 
* Grunnskipulagi eignarinnar hefur verið breytt skv. grunnteikningu eignarinnar, eldhús fært nær borðstofu og herbergi útbúið þar sem eldhús var staðsett. 
* Seljandi vill koma því á framfæri að eignin er úr dánarbúi og hefur hann því takmarkaðar upplýsingar um viðhaldssögu eignarinnar.  
* Rafmagnspottur getur fylgt með eigninni- en þetta er notaður rafmagnsheitapottur sem þarf að tengja. 
Gallar
* Hringstigi í eigninni er farinn að þarfnast viðhalds, þrepin orðin undin og slitin. Nýlega er búið að gera við baðherbergið, þar sem þar varð vatnstjón. 
* Parket í hjónaherbergi er illa lagt og dúar sumstaðar.  
Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir vel skipulagt endaraðhús með innbyggðum bílskúr við Björtuhlíð 35 í Mosfellsbæ 
*** SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN***
Eignin er skv. fasteignayfirliti HMS samtals skráð 152 m2, þar af er innbyggður bílskúr 24,7 m2 og geymsla 7,4 m2. 
Garðskáli skráður 19 m2 er ranglega skráður inn í heildar fermetra fjölda eignarinnar(ekki til staðar).
Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 108.600.000,- 
Umrædd eign er einstaklega vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri og bjartri stofu og borðstofu, bílskúr með geymslulofti og garði sem snýr í suð-vestur. Aðkoma að húsinu er einstaklega góð með steyptu snyrtilegu plani með snjóbræðslu, sem rúmar tvær bifreiðar og með möguleika á rafhleðslu. 

Nánari lýsing: 
Forstofa: flísar á gólfi og fatahengi. 
Gangur: flísar á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi, nýr vaskur og innrétting, upphengt salerni, sturta, pláss fyrir þvottavél. 
Herbergi I: parket á gólfi.
Stigahol: flísar á gólfi, hringstigi liggur upp á loft, sem má nýta sem skrifstofu eða sjónvarpsstofu. 
Eldhús: flísar á gólfi, bjart og opið eldhús með eyju á hjólum.
Stofa- og borðstofa: flísar á gólfi, frá sólskála er útgengt út á afgirtan pall sem snýr í suð-vestur.
Herbergi II: parket á gólfi.
Hjónaherbergi III: parket á gólfi, rúmgóðir fataskápar, frá hjónaherbergi er útgengt út í rúmgóðan bakgarð sem snýr í suð-vestur.
Geymsluskýli: staðsett úti fyrir ruslatunnur og hjól. 
Bílskúr: flísar á gólfi, geymsluloft yfir bílskúr. 

Umrædd eign vel staðsett í Mosfellsbæ, í göngufæri við Lágafellslaug, skóla og leikskóla. Stutt í þjónstukjarna í Bjarkarholti í Mosfellsbæ og fallegar gönguleiðir. Þetta er eign sem er einstaklega vel skipulögð, með góðu aðgengi sem vert er að kynna sér vel. 

Að sögn eiganda hefur eignin hlotið eftirfarandi viðhald: 
2025 var baðherbergi endurnýjað að hluta, baðherbergi málað, nýr vaskur og innrétting undir vaski, nýtt blöndunartæki.  
2024 var skipt um alla glugga(nema einn í forstofu herbergi) og hurðir út í garð.


Nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1993
7.4 m2
Fasteignanúmer
2083091
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.900.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tröllateigur 24
Bílastæði
Skoða eignina Tröllateigur 24
Tröllateigur 24
270 Mosfellsbær
160.3 m2
Fjölbýlishús
423
679 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Aðaltún 4
Skoða eignina Aðaltún 4
Aðaltún 4
270 Mosfellsbær
122 m2
Parhús
412
1057 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Úugata 6 (105)
Bílastæði
Skoða eignina Úugata 6 (105)
Úugata 6 (105)
270 Mosfellsbær
162.6 m2
Fjölbýlishús
614
787 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 6 (205)
Bílastæði
Skoða eignina Úugata 6 (205)
Úugata 6 (205)
270 Mosfellsbær
165.1 m2
Fjölbýlishús
624
775 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin