Fasteignaleitin
Opið hús:08. sept. kl 12:00-12:30
Skráð 3. sept. 2026

Hlíðarhjalli 41

HæðHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
162.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
116.900.000 kr.
Fermetraverð
718.059 kr./m2
Fasteignamat
104.600.000 kr.
Brunabótamat
73.710.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Byggt 1988
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2061890
Landnúmer
114709
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Að sögn seljanda í lagi
Raflagnir
Að sögn seljanda í lagi
Frárennslislagnir
Að sögn seljanda í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Að sögn seljanda í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Rúmgóð og björt 4ra til 5 herbergja efri sérhæð með góðu útsýni, sérinngang og bílastæði í lokuðum bílakjallara við Hlíðarhjalla í suðurhlíðum Kópavogs. Lagt er fyrir rafmagnshleðslu í bílakjallara.  Mikil lofthæð er í eigninni. Í dag eru 3 rúmgóð herbergi en auðvelt að gera 4 herbergið. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 162,8 fm þar af eru 31,3 fm. sem samanstanda af sérbílastæði í lokuðum bílakjallara og geymslu.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpsrými, þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Auðvelt er að útbúa fjórða svefnherbergið úr sjónvarpsherberginu.


Nánari lýsing
Fyrir framan sérinngang eignarinnar er sólrík verönd til suðurs. 
Forstofa með góðum fataskápum og flísar á gólfi.
Eldhús er opið og bjart, granít borðplötur, gott skápapláss, ofn í vinnuhæð, gufugleypir, gas/rafmagns helluborð og flísar á gólfi. Rúmgóðum eldhúskrókur með góðu útsýni og parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð og björt með mikillri lofthæð og parket á gólfi. Útgengt er út á litlar svalir úr stofunni.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi II mjög rúmgott með parket á gólfi. 
Svefnherbergi III mjög rúmgott með parketi á gólfi.  
Sjónvarpsrými býður upp á fjölbreytta nýtinga möguleika og mætti auðveldlega nýta sem fjórða svefnherbergið.
Baðherbergi með baðkari og sturtu, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, gluggi og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting, vaskur og flísar á gólfi.
Sérbílastæði er í lokuðum bílakjallara og geymsla eignarinnar er inn af bílastæðinu. Rafhleðslustöð fylgir eigninni.

Í sameign er sameiginleg hjólageymsla fyrir húsið. 
Lóð í góðri rækt með leiktækjum.

Helstu framkvæmdir og endurbætur á sameign:
Gluggar hæðarinnar endurnýjaðir vorið 2026, ásamt útidyrahurð og svalahurð.
Blásarar í bílakjallara endurnýjaðir árið 2025.
Þakrennur endurnýjaðar árið 2023. 
Hleðslustöð sett upp við bílastæði árið 2023.
Dúkur á þaki bílageymslu endurnýjaður, nýtt gras sett ofan á og hellulögn endurgerð árið 2018. 

Þetta er falleg og björt eign með fallegu útsýni á eftirsóttum stað í suðurhlíðum Kópavogs með möguleika á fjórum svefnherbergjum, sérinngangi,
suðurverönd og sérbílastæði í lokuðum bílakjallara með rafhleðslu.

Staðsetning eignarinnar er afar góð. Húsið stendur í lokuðum botnlanga við Hlíðarhjalla, í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi.
Stutt er í skóla og leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu. Þá eru frábær útivistarsvæði í Kópavogsdalnum
í næsta nágrenni og greiðar samgöngur í allar áttir, enda stutt í helstu stofnæðir.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/06/200826.430.000 kr.39.000.000 kr.162.8 m2239.557 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1987
31.3 m2
Fasteignanúmer
2061890
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
08
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.860.000 kr.

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
791 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Búðagerði 4
Skoða eignina Búðagerði 4
Búðagerði 4
108 Reykjavík
56 m2
Fjölbýlishús
211
891 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 504
Bílastæði
Opið hús:05. sept. kl 11:30-12:00
Jöfursbás 3B íb 504
112 Reykjavík
165.9 m2
Fjölbýlishús
313
783 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin