Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynnir raðhús með auka íbúð við Tunguveg 76
Um er að ræða einstaklega vel skipulagt raðhús sem skv., FMR yfirliti frá HMS er skráð 130,5 m2, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu sem hefur verið töluvert endurnýjað, en kjallari eignarinnar var grafinn út að hluta og útbúin tveggja herbergja íbúð í kjallara hússins.
Fasteignamat eignarinnar árið 2027 er kr. 96.750.000,-
Nánari lýsing:
Fyrsta og önnur hæð.
Forstofa: flísar á gólfi.
Eldhús: dúkur á gólfi og hvít eldhúsinnrétting með stein á borði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, innfeldum vask og bakaraofn með innbyggðum örbylgjuofni í vinnuhæð. Tvær gas- og spanhellur.
Stofa: dúkur á gólfi, frá stofu er útgengt í bakgarð, en stigi frá stofuhurð verður settur upp fyrir afhendingu eignar.
Stigi: teppi á gólfi.
Stigapallur: á stigapalli eru innbyggðir skápar sem að nýtast vel sem geymslurými.
Herbergi II: dúkur á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, sturta, upphengt salerni og vaskur með innréttingu og steinn á borði, tengi fyrir þvottavél, hiti í gólfi.
Hjónaherbergi: dúkur á gólfi og fataskápar, fallegt útsýni úr hjónaherbergi í átt að Fossvogi.
Kjallaraíbúð, skráð 43,5 m2.
Gengið er frá forstofu niður stiga í kjallara íbúð, sem hefur nýlega verið endurnýjuð.
Stofa: parket á gólfi, frá stofu er útgengt út í bakgarð.
Eldhús: parket á gólfi, nýleg eldhúsinnrétting, með innbyggðum ísskáp.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni og innrétting undir vask, pláss fyrir þvottavél- og þurrkara.
Herbergi: parket á gólfi og fataskápar.
Aðkoma að eigninni er góð, en bílastæði eru merkt austan megin við raðhúsalengjuna. Staðsetning eignarinnar er góð, fyrir ofan Bústaðaveg, í göngufæri við skóla- og alla helstu þjónustu- og verslun.
Allar nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.