Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2024

Skipholt 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
97.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
922.051 kr./m2
Fasteignamat
77.950.000 kr.
Brunabótamat
52.950.000 kr.
Mynd af Arinbjörn Marinósson
Arinbjörn Marinósson
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522286
Landnúmer
103024
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Nýtt (2023)
Raflagnir
Nýtt (2023)
Frárennslislagnir
Nýtt (2023)
Gluggar / Gler
Nýtt (2023)
Þak
Nýtt (2023)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Upphitun
Ofna kynding
Inngangur
Sameiginlegur
LIND Fasteignasala og Arnahvoll kynna með stolti Skipholt 1. 
Glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í húsnæði þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar heillandi íbúðir. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð, sólríkar með mögnuðu útsýni.

HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi, innréttingum og tækjum samkvæmt skilalýsingu.
Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og skóla.

 
Allar nánari upplýsingar veita:
Arinbjörn Marinósson Löggiltur fasteignasali / arinbjorn@fastlind.is / 822 8574
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / hrafnkell@fastlind.is  / 690 8236

 
Íbúð 206 er 97,5 fm 3 herbergja íbúð á 2. hæð. Geymsla 8 fm. Suðursvalir.
 
Íbúar í Skipholti 1 eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu.
Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.
 
Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðheerbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél. Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.
 
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma. 

 
Á fimmtu hæð hússins eru glæsilegar sameiginlegar 81,7 fm þaksvalir. Þær snúa til suð -vesturs og eru mjög sólríkar og með fallegu útsýni sem nær yfir Keili, Háteigskirkju, Perluna, Hallgrímskirkju, Esjuna og önnur þekkt kennileiti. Þaksvalirnar eru aðgengilegar bæði úr sameign og frá svalagangi 5. hæðar. Á góðviðrisdögum getur skapast einstök stemming á þaksvölunum
 
Íbúðirnar eru 2 til 4 herbergja og er stærð íbúða frá 55 m2 upp í 118 m2. Í kjallara eru geymslur, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, sorpgeymsla og tæknirými með inntökum og öðrum tæknibúnaði.
 
Skipholt 1 er á frábærum stað í útjaðri miðbæjar Reykjavíkur. Leikskólar, grunnskólar og aðrir skólar eru í göngufæri. Stutt er í miðbæinn og allt sem hann býður upp á, þjónustu, matvöruverslanir, sérverslanir, ýmsa alþjóðlega veitingastaði ásamt kaffihúsum o.fl. Það tekur aðeins um tvær mínútur að ganga í Bónus, sem er í sömu götu. Einnig er stutt í Hlemm, miðstöð almenningssamgangna, Sundhöllina, útivistarsvæði á Klambratúni og sjávarsíðuna.
 
Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt. Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.
 
*ATH* *Myndir að innan sem fylgja auglýsingu er dæmi um íbúðir og eiga ekki við um allar íbúðir í húsinu.

Skipholt 1 - 206 , 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-06, fastanúmer 252-2286 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Skipholt 1 - 206 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-2286, birt stærð 97.5 fm.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsvegur 12
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kleppsvegur 12
Kleppsvegur 12
105 Reykjavík
81.3 m2
Fjölbýlishús
312
860 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb305
Eskiás 10 íb305
210 Garðabær
87.2 m2
Fjölbýlishús
32
997 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb209
Eskiás 10 íb209
210 Garðabær
91.9 m2
Fjölbýlishús
32
978 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Engjasel 35
Skoða eignina Engjasel 35
Engjasel 35
109 Reykjavík
114.1 m2
Fjölbýlishús
514
603 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin